Fréttir / tilkynningar
Blæbrigði vatnsins - sýningarlok. Kjarvalsstaðir, sunnudag 2. maí
An upcoming exhibitionÁ sunnudag lýkur hinni rómuðu vatnslitasýningu á Kjarvalsstöðum, Blæbrigði vatnsins - Vatnslitir í íslenskri myndlist 1880-2010. Sýningin gefur einstakt yfirlit yfir sögu vatnslitaverka á Íslandi og er í raun fyrsta tilraun sem gerð hefur verið til skráningar á sögu vatnslitanna í íslenskri myndlist. Á sýningunni eru rúmlega 140 verk eftir 60 listamenn. Markmið sýningarinnar er að draga fram einkenni vatnslitalistarinnar, skoða fjölbreytileika hennar og hvernig hún hefur breyst í tímans rás. Vegleg bók var gefin út samhliða sýningunni og er hún fáanleg í verslunum Listasafns Reykjavíkur. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega 10-17.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.15.2012
|