Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Sýningarstjóraspjall á útskriftarsýningu Listaháskólans. Sunnudag 2. maí kl. 15

An upcoming exhibition

LHÍFleiri þúsund manns hafa streymt í Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi undanfarna daga til að skoða og upplifa hina kraftmiklu sýningu útskriftarnemenda í myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.

Næstkomandi sunnudag kl. 15 bjóða sýningarstjórar sýningarinnar, þeir Daníel Karl Björnsson og  Jóhann Sigurðsson, gestum að ganga með sér um sýninguna og spjalla um það sem fyrir augu ber.






Í ár sýna 79 nemendur  verk sín; 47 í hönnunar-og arkitekúrdeild og 32 í myndlistardeild.
Sýningin er unnin í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.

Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.16.2012