Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Minn Ásmundur

An upcoming exhibition

“Minn Ásmundur”. Björg í Bú. Hönnuðirnir eru Edda Gylfadóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir og Helga Björg Jónasardóttir

Í dag voru veitt verðlaun í hönnunarsamkeppni í anda myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar sem verslunin Kraum, Listasafn Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöð Íslands standa að.

Þetta er í annað sinn sem þessir sömu aðilar standa fyrir hönnunarsamkeppni þar sem skírskotað er til einstaks listamanns, í fyrra var það Erró, og væntingar standa til að framhald verði á samstarfinu í framtíðinni.
 
Samkeppnin, hönnun í anda Ásmundar, var opin öllum. Í samkeppnislýsingu var óskað eftir tillögum að nytjahlut sem endurspegla skyldi hugarheim og verk myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar.

Dómnefnd skipuðu: Halla Bogadóttir f.h. Kraums formaður, Soffía Karlsdóttir f.h. Listasafns Reykjavíkur, Halla Helgadóttir f.h. Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Pétur H. Ármannsson arkitekt, Óðinn Bolli Björgvinsson vöruhönnuður og Ingirafn Steinarsson f.h. SÍM.

Innsendar tillögur í keppnina voru 68 og voru þær allar teknar til dóms. Af þeim voru 15 tillögur valdar til að keppa um verðlaunasæti og til sýningar í Ásmundarsafni næstu tvær vikurnar. Að mati dómnefndar fela tillögurnar 15 í sér skemmtilegar og raunhæfar hugmyndir að vöru með vísun í form- og hugarheim Ásmundar Sveinssonar og er það einlæg von dómnefndar að einhverjar þeirra megi nýta og þróa áfram.

Dómnefndar valdi að lokum þrjár tillögur úr hópi hinna fimmtán sem álitlegastar þóttu til verðlauna. Þær endurspegla ólík tímabil í listsköpun Ásmundar og fela jafnframt í sér afar vel útfærðar lausnir á hugmyndum sem eru í takt við ákveðna meginstrauma sem greina má í fleiri innsendum tillögum.

Endanleg niðurstaða dómnefndar var sem hér segir :

Í þriðja sæti var tillaga auðkennd sem “Bergþóra”;  hugmynd um viskustykki, hversdagslegum nytjahlut, með áþrykktu, stílfærðu mynstri sem sækir innblástur í járnskúlptúra Ásmundar frá 6. og 7. áratugnum. Hún er ein þeirra tillagna í keppninni sem kusu að túlka þrívíð form listamannsins í tvívídd. Dómnefnd mælir með að varan verði þróuð áfram til framleiðslu. Viðurkenninguna hljóta Jóhanna Erla og Elísabet Jónsdóttir.

Í öðru sæti er tillaga sem er auðkennd sem “Tif”, hringlaga klukka úr ógangsæju hvítu plexigleri. Í hringinn eru fræst göt sem minna á glugga kúluhúss Ásmundar. Klukkan er hugsuð sem fyrsta varan í röð hluta sem byggja á sama grunnforminu; hinar eru ljós og skál. Tillagan er ein margra í  keppninni sem sækir innblástur í hús Ásmundar. Dómnefnd mælir með að varan verði þróuð áfram til framleiðslu. Hönnuður er Örn Smára Gíslason.

Í fyrsta sæti var tillaga sem er auðkennd sem “Minn Ásmundur”.
Um er að ræða þrívíddar-púsluspil sem raða má saman á ótal vegu án þess að vera bundinn af fyrirfram gefinni lausn. Tvívíðir hlutar spilsins eru unnir út frá kunnuglegum formum í myndheimi Ásmundar, sem þátttakandinn getur raðað saman í þrívídd og með því skapað sinn eigin skúlptúr. Hluturinn hvetur til leiks og sköpunar þar sem viðfangsefnið er myndbygging og jafnvægissamspil forma í þrívídd,  eða þau listrænu grunnatriði sem Ásmundur glímdi alla tíð við í verkum sínum. Bak við verðlaunatillöguna  Minn Ásmundur  er „BÍB“ sem stendur fyrir hönnunarstofuna Björg í Bú. Hönnuðirnir eru Edda Gylfadóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir og Helga Björg Jónasardóttir og hljóta þær verðlaunafé að upphæð kr. 500.000 auk þess sem varan verður þróuð áfram til framleiðslu, seld í verslunum Kraums í Aðalstræti og á Kjarvalsstöðum og í safnverslunum Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi og Ásmundarsafni. Verðlaunaféð er sameiginlegt framlag frá Kraumi, Listasafni Reykjavíkur, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins.

Sýning á þeim fimmtán tillögum sem þóttu skara fram úr stendur yfir í Ásmundarsafni til 16. maí. Opið daglega frá kl. 10 – 16. Aðgangur ókeypis.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.17.2012