Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Blómlegar konur. Ásmundarsafn, sunnudag 9. maí kl. 14

Ásmundur Sveinsson, Kona með dragspil
Konur, kvenímyndir og tákngervingar kvenna eru viðfangsefni nýrrar sýningar í Ásmundarsafni við Sigtún þar sem sjónum er beint að kvenlægum stefjum í verkum Ásmundar Sveinssonar.

Næstkomandi sunnudag,verður Ásdís Ásmundsdóttir, dóttir listamannsins, með í för í leiðsögn um sýninguna, sem ber yfirskriftina „Ég kýs blómlegar konur. . . “ Konan sem tákn í list Ásmundar Sveinssonar.

Auk sýningar í Ásmundarsafni hefur annar hluti píramídanna verið lagður undir endurgerð af vinnustofu Ásmundar, eins og hún leit út samkvæmt gömlum ljósmyndum. Í hinum hluta píramídans stendur nú yfir sýning á þeim fimmtán munum sem þóttu bera af í samkeppni sem gerð var um hönnun í anda Ásmundar.
Sú sýning stendur til 16. maí en þar mun síðan vera sett upp lesstofa þar sem hægt er að fræðast um líf og list Ásmundar í máli og myndum. Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00