Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Annað auga - Ljósmyndaverk úr safneign Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur. Kjarvalsstaðir, föstudag 14. maí kl. 17

An upcoming exhibition

Hjónin Pétur Arason og Ragna Róbertsdóttir eiga eitt stærsta safn listaverka í einkaeigu á Íslandi með verkum eftir kunnustu samtímalistamenn heims, innlenda sem erlenda. Safn Péturs og Rögnu er byggt upp af persónulegum kynnum þeirra við listamennina og endurspeglar fagurfræði þeirra fremur en tískusveiflur á listaverkamarkaði.

Á sýningunni Annað auga - Ljósmyndaverk úr safneign Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur, sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum næstkomandi föstudag kl. 17, hefur sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir  valið sextíu ljósmyndaverk úr safneign þeirra sem þykja gefa góða mynd af þeim áherslum, straumum og stefnum, er birst hafa í verkum innlendra og erlendra samtímamyndlistarmanna frá síðari hluta 7. áratugarins fram til dagsins í dag. Birta kýs að leggja áherslu á að gera skil þeim mörgu, íslensku myndlistarmönnum sem nota ljósmyndir í verkum sínum og skoða verk þeirra í samhengi við ljósmyndaverk í samtímalistum. Jafnframt því leggur hún áherslu á að sýna breiða og fjölbreytilega notkun ljósmynda í myndlist og varpa ljósi á ólíka afstöðu til notkunar miðilsins og möguleika hans.

Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010 og stendur til 22. ágúst.

LJÓS&MYND
Eins og hefð er orðin fyrir á Kjarvalsstöðum verður sett upp fjölskyldusmiðja í norðursalnum í tengslum við sýninguna í vestursal. Að þessu sinni ber smiðjan yfirskriftina Ljós&mynd en þar getur fjölskyldan uppgötvað á eigin forsendum hinar mörgu hliðar ljósmyndaverka.

Laugardaginn 5. júní mun ljósmyndarinn Pétur Thomsen vera í smiðjunni og leiða verkefni sem kynnt verður nánar síðar.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.21.2012