Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Nekt - Gary Schneider. Opnun laugardag 15. maí kl. 15

Gary Schneider, Trevor 2004Þrjátíu ögrandi myndir af nöktum líkömum í raunstærð, eftir hinn heimskunna ljósmyndara Gary Schneider, verða á sýningunni Nekt, sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.

Daginn fyrir opnun, föstudaginn 14. maí kl. 12, verður Gary með fyrirlestur í Hafnarhúsinu, þar sem hann fer yfir feril sinn í máli og myndum.

Ljósmyndarinn Gary Schneider fæddist í Suður Afríku árið 1954 en býr og starfar í New York. Í texta eftir ljósmyndarann Einar Fal Ingólfsson um sýninguna segir m.a. að verk Garys séu „...í senn málverk og ljósmyndir; filman skráir það sem listamaðurinn lýsir upp á löngum tíma. Ljósið málar fyrirsætuna á filmuna. Fyrirsætan liggur á svörtu klæði á gólfi, í myrkvuðu rýminu. Linsa myndavélarinnar er opin í allt að klukkustund og á meðan lýsir Schneider líkamann með litlu vasaljósi. Hann byrjar á andlitinu hægra megin, færir sig svo rólega niður eftir líkamanum þeim megin, fer síðan upp eftir vinstri hluta líkamans og endar á vinstri hluta höfuðsins. Ef lýst er lengur á einn hluta en annan verður sá hluti bjartari á myndinni.

Í nektarmyndum Schneiders eru allar fyrirsæturnar í sömu stellingu, hvíla hendur á mjöðmum og horfa beint í linsuna. Á öllum myndunum á athyglisverð breyting sér stað í augntilliti fólksins. Hægra augað horfir ákveðið út í heiminn en það vinstra virðist hins vegar frekar horfa inn á við, er íhugult, jafnvel varnarlaust eða viðkvæmnislegt. Þessu veldur að nær klukkustund líður frá því hægra augað er lesið á filmuna þar til það vinstra er lýst upp.

Þessi mikla nekt fyllir suma eflaust óöryggi – en um leið komumst við ekki undan því að viðurkenna að svona erum við. Þetta eru myndir af fólki eins og okkur; svona komum við í þennan heim og svona yfirgefum við hann.“

Sýningar á verkum Gary Schneiders hafa ratað í mörg af stærstu listasöfnum Bandaríkjanna og Evrópu og eru verk hans einnig hluti af safneign margra þeirra.

Grein eftir Einar Fal Ingólfsson

Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010.

Laugadaginn 22. maí  kl. 15 mun Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari ræða við gesti um sýningu Gary Schneiders.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00