Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Líkamar framandi kvenna. Hafnarhús, sunnudag 16. maí kl. 15

An upcoming exhibition

Líkamar framandi kvenna: Póstkort frá Alsír og konur með blæju er yfirskrift fyrirlesturs sem Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands verður með í tengslum við sýninguna Erró – Konur frá Norður Afríku í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi sunnudaginn 16. maí kl. 15.

Í fyrirlestri sínum mun Kristín fjalla almennt um ímyndir kvenna sem voru skilgreindar framandi í vestrænni orðræðu á tímum nýlendu- og heimsvaldahyggju. Einnig beinir hún sjónum að ímynd múslíma kvenna og veltir að lokum upp mikilvægi gagnrýnnar skoðunar á samtíma okkar og mikilvægi á samtengingu nútíðar og fortíðar. 

Að loknu erindi Kristínar munu hún og AlmaDís Kristinsdóttir verkefnastjóri fræðslu hjá Listasafni Reykjavíkur fara með gestum um sýningu Errós.

Aðgangur ókeypis – Allir velkomnir.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.27.2012