Fréttir / tilkynningar
Þrjár nýjar sýningar: Í safni ófullkomleikans - Vanitas-Kyrralíf - Svefnljós. Fimmtudag 20. maí kl. 17 og 18.30
Í SAFNI ÓFULLKOMLEIKANS – UNNAR ÖRN J. AUÐARSON
HAFNARHÚS, FIMMTUDAG 20. MAÍ KL. 17
Á sýningu sinni, Í safni ófullkomleikans, leggur Unnar Örn áherslu á gildi og inntak hins ófullkomna.
Í grein sem Markús Þór Andrésson hefur ritað í tilefni sýningarinnar segir m.a.:
„Listasafn Reykjavíkur hefur boðið Unnari Erni að sýna í Hafnarhúsinu og af því tilefni beinir hann sjónum sínum að stofnuninni sem slíkri í víðu samhengi en innviðum hennar einnig. Hvernig er menning samfélags skrásett, varðveitt og notuð til að endurspegla sjálfsmynd borgaranna og sögu þeirra? Unnar Örn grúskar í söfnum Reykjavíkurborgar sem geyma ýmist minjar, myndlist, byggingarlist, ljósmyndir, bækur eða skjöl. Þar leynast munir sem eru mörgum kunnir, sjálfur menningararfurinn, en söfnin varðveita þó langtum meira magn en almennt er til sýnis. Meirihluti gripa í fórum þeirra hefur aldrei komið fyrir sjónir almennings. Í rannsókn sinni leggur Unnar Örn sérstaka áherslu á muni sem tengjast sögu einstaklingsins. Sögu fólks sem viðaði að sér, skrásetti, skapaði og skildi eftir sig minningar sem rötuðu inn á söfnin og eru varðveittar þar. Gildi slíkra safna var ljóst þeim einstaklingum sem að þeim stóðu á sínum tíma en kann að vera okkur óljóst í dag.”
Á sýningunni skoðar Unnar Örn einnig þá mynd sem hið opinbera vald hefur kosið að draga upp af þjóðinni á alþjóðavettvangi í tengslum við heimssýningar.
Skammt er síðan Unnar Örn hélt sýningu í Gallerí Ágúst, sem líta má á sem formála þeirrar sýningar sem hann býður til nú.
Sýningin stendur til 29. ágúst.
Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010.
Sunnudag 30. maí kl. 15 mun Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur stýra pallborði um framleiðslu á minningum þjóðar. Meðal þátttakenda eru Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Íris Ellenberger og Unnar Örn J. Auðarson.
VANITAS – KYRRALÍF
HAFNARHÚS, FIMMTUDAG 20. MAÍ KL. 17:00
Latneska orðið vanitas merkir hégómi, eitthvað sem er innantómt, fánýtt eða einskisvert. Í listasögunni er vanitas notað um kyrralífsmálverk sem tjá hverfulleika jarðlífsins. Hér er heitið notað um samtímaverk sem teljast kyrralíf, þótt mörg þeirra hafi ekki verið sýnd sem slík í upphafi.
Eins og hefðbundin kyrralífsverk fjalla þau um lífsmáta okkar. Efniviður þeirra er hversdagslegur og uppsetning hlutanna einföld og yfirlætislaus. Með því að safna þessum verkum saman sérstaklega undir heitinu vanitas er ætlunin að minna á fallvaltleika og endurnýjun sem felast í þeim. Í mörgum verkanna er sjónum beint að óverðugum gildum samtímans en þó eru skilaboð þeirra hvorki napurleg né svartsýn. Í þeim er ekki lögð áhersla á tilgangsleysi mannlegrar viðleitni heldur á vonina og þörfina á að fara með gát.
Sýningin stendur til 29. ágúst.
Listamenn sem verk eiga á sýningunni eru Áslaug Thorlacius, Bragi Ásgeirsson, Dieter Roth, Haraldur Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Magnús Tómasson, Ólafur Gíslason, Ólöf Nordal, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rósa Gísladóttir og Spessi. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.
Sunnudag 6. júní kl. 15 verður Hafþór Yngvason með sýningarstjóraspjall í Hafnarhúsinu.
SVEFNLJÓS – RÁÐHILDUR INGADÓTTIR
ÁSMUNDARSAFN, FIMMTUDAG 20. MAÍ KL. 18:30
Svefnljós er heiti á innsetningu Ráðhildar Ingadóttur í Ásmundarsafni. Verkið stendur saman af hvolfi kúlunnar í Ásmundarsafni, hljóði rýmisins, tölvu, handspegli, ljósvarpa og skugga.
Sýningin stendur til 17. apríl 2011.
Listasafn Reykjavíkur býður opnunargestum upp á rútuferðir fram og til baka frá Hafnarhúsinu að Ásmundarsafni. Fyrsta rútan fer stundvíslega frá Tryggvagötu kl. 18.30.
Prenta Til baka