Fréttir / tilkynningar
Í safni ófullkomleikans - Unnar Örn J. Auðarson Hafnarhús, fimmtudag 20. maí kl. 17
An upcoming exhibition Á sýningu sinni, Í safni ófullkomleikans, leggur Unnar Örn áherslu á gildi og inntak hins ófullkomna.
Í grein sem Markús Þór Andrésson hefur ritað í tilefni sýningarinnar segir m.a.: „Listasafn Reykjavíkur hefur boðið Unnari Erni að sýna í Hafnarhúsinu og af því tilefni beinir hann sjónum sínum að stofnuninni sem slíkri í víðu samhengi en innviðum hennar einnig. Hvernig er menning samfélags skrásett, varðveitt og notuð til að endurspegla sjálfsmynd borgaranna og sögu þeirra? Unnar Örn grúskar í söfnum Reykjavíkurborgar sem geyma ýmist minjar, myndlist, byggingarlist, ljósmyndir, bækur eða skjöl. Þar leynast munir sem eru mörgum kunnir, sjálfur menningararfurinn, en söfnin varðveita þó langtum meira magn en almennt er til sýnis. Meirihluti gripa í fórum þeirra hefur aldrei komið fyrir sjónir almennings. Í rannsókn sinni leggur Unnar Örn sérstaka áherslu á muni sem tengjast sögu einstaklingsins. Sögu fólks sem viðaði að sér, skrásetti, skapaði og skildi eftir sig minningar sem rötuðu inn á söfnin og eru varðveittar þar. Gildi slíkra safna var ljóst þeim einstaklingum sem að þeim stóðu á sínum tíma en kann að vera okkur óljóst í dag.”
Á sýningunni skoðar Unnar Örn einnig þá mynd sem hið opinbera vald hefur kosið að draga upp af þjóðinni á alþjóðavettvangi í tengslum við heimssýningar.
Skammt er síðan Unnar Örn hélt sýningu í Gallerí Ágúst, sem líta má á sem formála þeirrar sýningar sem hann býður til nú.
Sýningin stendur til 29. ágúst.
Texti eftir Markús Þór Andrésson Unnar Örn CV (pdf)
Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010.
Sunnudag 30. maí kl. 15 mun Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur stýra pallborði um framleiðslu á minningum þjóðar. Meðal þátttakenda eru Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Íris Ellenberger og Unnar Örn J. Auðarson.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.28.2012
|