Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Vanitas - Kyrralíf. Hafnarhús, fimmtudag 20. maí kl. 17

Ragnhildur Stefánsdóttir, Ávextir, 1999
Latneska orðið vanitas merkir hégómi, eitthvað sem er innantómt, fánýtt eða einskisvert. Í listasögunni er vanitas notað um kyrralífsmálverk sem tjá hverfulleika jarðlífsins. Hér er heitið notað um samtímaverk sem teljast kyrralíf, þótt mörg þeirra hafi ekki verið sýnd sem slík í upphafi.

Eins og hefðbundin kyrralífsverk fjalla þau um lífsmáta okkar. Efniviður þeirra er hversdagslegur og uppsetning hlutanna einföld og yfirlætislaus. Með því að safna þessum verkum saman sérstaklega undir heitinu vanitas er ætlunin að minna  á fallvaltleika og endurnýjun sem felast í þeim. Í mörgum verkanna er sjónum beint  að óverðugum gildum samtímans en þó eru skilaboð þeirra hvorki napurleg né svartsýn. Í þeim er ekki lögð áhersla  á tilgangsleysi mannlegrar viðleitni heldur á vonina og þörfina á að fara með gát.

Sýningin stendur til 29. ágúst.

Listamenn sem verk eiga á sýningunni eru Áslaug Thorlacius, Bragi Ásgeirsson, Dieter Roth, Haraldur Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Magnús Tómasson, Ólafur Gíslason, Ólöf Nordal, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rósa Gísladóttir og Spessi.

Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason. Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00