Fréttir / tilkynningar
Raflistahátíð í Listasafni Reykjavíkur. Hafnarhús, fimmtudag - laugardags 20. - 22. maí
Lorna, félag áhugamanna um rafræna list og Raflistafélag Íslands, félag sjálfstætt starfandi raflistamanna standa fyrir raflistahátíð í Reykjavík dagana 14. - 22. maí undir heitinu RAFLOST + Pikslaverk. Fjölmargir viðburðir verða út um allan bæ, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur-Hafnarhúsi dagana 20. - 22. maí.
Hér að neðan fer dagskrá sem unnin er í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og er ókeypis inn á þá alla:
Fimmtudag 20. maí kl. 20-22
Pikslaverk verður formlega sett í Hafnarhúsinu. Páll Thayer myndlistarmaður og forsprakki hátíðarinnar á Íslandi fjallar um örkóða og Servando Barreiro frá Spáni flytur tónlistargjörning.
Föstudag 21. maí 13-17
Föstudagurinn verður helgaður fyrirlestrum listamanna.
Linda Hilfling frá Danmörku fjallar um möguleika og takmörk gagnvirkni í sjónvarpsþáttagerð út frá verkinu Fjarstýring.
Marco Donnarumma frá Ítalíu segir frá verkefninu Gullskjöldurinn, en í því notast hann við ritskoðaðar IP tölur úr hinum svokallað kínverska eldvegg til að skapa hljóðverk.
Rafael Hidalgo Múgica frá Tenerife á Spáni vinnur einnig með hljóð í verkinu Veðurskynjanir sem hann byggir á upplýsingum frá veðurathugunarstöðvum.
Martins Howse frá Bretlandi fjallar um ósýnileik kóðans út frá verkinu Island2 og
Servando Barreiro verður með kynningu á búnaði sem hann kallar Minitronics. Loks mun
Juan Parra Cancino frá Chile/Hollandi vera með fyrirlestur um flutning tölvutónlistar.
Laugardag 22. maí kl. 14-17
Sýnd verða verk listamannanna Páls Thayers, Rafael Hidalgo Múgica og Ragnars Helga Ólafssonar í fjölnotasal Hafnarhússins.
Dagskráin fer víða og er afar fjölbreytt sjá hér nánar:
www.raflost.is og
www.pikslaverk.orgNánari upplýsingar um hátíðina veita:
Áki Ásgeirsson, sími 6619731 (RAFLOST)
Margrét Elísabet Ólafsdóttir, sími 694 9962 (Pikslaverk)
Prenta Til baka