Fréttir / tilkynningar
Einar Falur fjallar um Nekt Schneiders. Hafnarhús, laugardag 22. maí kl. 15
An upcoming exhibitionGary Schneider, Ellen, 2004. Ljósmyndaserían Nekt í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi hefur vakið mikla athygli fyrir áleitnar og ögrandi myndir af nöktum líkömum í fullri stærð. Verkin eru eftir hinn kunna listamann og New Yorkbúa Gary Schneider. Þrjátíu líkamsmyndir af körlum og konum þekja tvo sali Hafnarhússins, en það tekur listamanninn um klukkustund að taka hverja þeirra. Útkoman leiðir m.a. til þess að ýmsir líkamshlutar bjagast og augnaráð og andlit þeirra, sem sitja fyrir, eru ekki samhverf. Ljósmyndarinn Einar Falur Ingólfsson er vel kunnur verkum og ferli Garys Schneiders og mun næstkomandi laugardag reifa feril hans og útskýra myndaseríuna Nekt, sem hvarvetna hefur hlotið mikil viðbrögð. Einar Falur hefur einnig ritað vandaða grein sem fylgir sýningunni og sjá má hér. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Vinsamlega athugið að Hafnarhús er opið 13 – 17 á hvítasunnudag, sunnudaginn 23. maí.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.34.2012
|