Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Safnari, sýningarstjóri og ljósmyndari. Kjarvalsstaðir, hvítasunnudag 23. maí kl. 15

Ólöf Nordal. Gull / Gold, 2002 Hinn mikilvirki listaverkasafnari Pétur Arason mætir sýningarstjóranum Birtu Guðjónsdóttur og ljósmyndaranum Einari Fali Ingólfssyni í spjalli um sýninguna Annað auga – Ljósmyndaverk úr safneign Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur á hvítasunnudag, 23. maí kl. 15.

Sýningin var nýlega opnuð á Kjarvalsstöðum og er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík, en þar eru til sýnis um sextíu ljósmyndaverk úr safneign Péturs og Rögnu.

Pétur og Ragna eiga eitt stærsta safn listaverka í einkaeigu á Íslandi með um eittþúsund verkum eftir kunnustu samtímalistamenn heims, innlenda sem erlenda.

Á þessari einstæðu yfirlitssýningu á ljósmyndaverkum safnaranna  hefur sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir lagt áherslu á verk samtímamyndlistarmanna frá síðari hluta sjöunda áratugarins fram til dagsins í dag.

Kjarvalsstaðir eru opnir daglega 10 – 17, en á hvítasunnudag er aðeins opið frá kl. 13-17. Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00