Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Krads: Lóðrétt einbýlishús, legokubbar og turn úr indíjánatjaldi. Hafnarhús, fimmtudag 27. maí kl. 20

An upcoming exhibition

Krads arkitektarKRADS arkitektar er ung arkitektastofa sem fer ekki troðnar slóðir í verkefnum sínum.
Næstkomandi fimmtudagskvöld,verða fulltrúar frá stofunni í fjölnotasal Hafnarhússins og munu segja frá verkefnum sínum í máli og myndum, en þeirra á meðal eru lóðrétt einbýlishúsabyggð, fljúgandi drive-through veitingastaður, 50 hæða turn í formi indíánatjalds og leikur með LEGO.

Stofan er stofnuð af þeim Kristjáni Eggertssyni og Kristjáni Erni Kjartanssyni auk Mads Bay Möller, en síðar bættist Kristoffer J. Beilman við hópinn.

KRADS er með útibú beggja vegna hafsins, á Íslandi og í Danmörku, og fæst við vítt svið verkefna, allt frá borgarskipulagi og hefðbundnum byggingarverkum til margvíslegra tilraunaverkefna og þróunarstarfs þar sem mikil áhersla er lögð á skapandi og ferskar lausnir sem vísa fram í tímann.

Af nýjustu verkefnum þeirra má meðal annars nefna verslunarmiðstöðina Kauptún í Garðabæ, en stofan hlaut einnig önnur verðlaun í samkeppni um framhaldsskóla í Mosfellsbæ. Nýlega stóð stofan fyrir listsmiðju arkitektanema í Listaháskóla Íslands þar sem LEGO kubbar voru byggingarefni.

Sjá hér nánar um stofuna: www.krads.info


Aðgangur ókeypis  og allir velkomnir.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.38.2012