Fréttir / tilkynningar
Sara Riel hlýtur styrk úr listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur

Sara Riel hlýtur styrk úr listasjóði Guðmundu S.Kristinsdóttur
Í dag afhenti Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Söru Riel verðlaunafé og viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur fyrir framlag sitt á sviði myndlistar. Sjóðinn stofnaði Erró til minningar um frænku sína Guðmundu og er honum ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna. Er þetta í ellefta sinn sem styrkur er veittur úr sjóðnum en framlagið rennur til listakonu sem þykir skara fram úr. Stjórn sjóðsins skipa safnstjórar Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands og Listasafnsins á Akureyri.
LISTASJÓÐUR GUÐMUNDU
Listasjóður Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi var stofnaður í tilefni af gjöf Errós á andvirði íbúðar að Freyjugötu 34, er Guðmunda hafði arfleitt hann að. Markmið sjóðsins er að styrkja listakonur með því að veita framlag til viðurkenningar og eflingar á listsköpun kvenna. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun í vörslu borgarsjóðs Reykjavíkur. Umsjón með sjóðnum hafa Reykjavíkurborg og Errósafn.
Þær konur sem áður hafa hlotið viðurkenningu úr sjóðnum eru Ólöf Nordal, Finna Birna Steinsson, Katrín Sigurðardóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sara Björnsdóttir, Þóra Þórisdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Hulda Stefánsdóttir og Margrét H. Blöndal.
SARA RIEL
Myndlistakonan Sara Riel (1980) býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist úr Kunsthochschule Berlin-Weissensee árið 2005, en þar vann hún til DAAD verðlaunanna og var sæmd titlinum Meisterschuler. Strax á námsárunum var Sara virk í sýningarhaldi og hefur sýnt verk sín hér á landi og víða um heim á einkasýningum og samsýningum.
Verk Söru eru af ólíkum meiði og unnin í ólíka miðla en eiga það sammerkt að virkja ímyndunarafl áhorfandans og vekja upp hugrenningar um hið hverfandi augnablik. Þau eru frásagnarkennd, margræð, opin og útfærð með hverri þeirri aðferð sem listamaðurinn telur henta í því skini að koma ákveðnum atburðum, upplifunum, sögum eða augnablikum til skila.
Verk Söru eiga rætur að rekja og vísa til í götulistar (Urban Art), popplistarinnar, teiknimyndahefðar, hugmynda-og mínimalisma auk (grafískrar) hönnunar.
Prenta Til baka