Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Fullkomleikaárátta. Hafnarhús, sunnudag 30. maí kl. 15

An upcoming exhibition

Fullkomleikaárátta - Samtal um vald, sjálfsmynd og ófullkomleika er yfirskrift samtals sem boðað er til í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Samtalið er byggt á sýningu Unnars Arnar J. Auðarsonar, Í safni ófullkomleikans  1939 – 2010, sem nýlega var opnuð í Hafnarhúsinu.

Þar ræða saman þau Íris Ellenberger sagnfræðingur, Sigurjón Baldur Hafsteinsson mannfræðingur og listamaðurinn sjálfur. Stjórnandi er Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og heimspekingur.

Samtal fjórmenninganna fer fram í sýningarsalnum í fréttasetti frá árdögum Ríkissjónvarpsins, sem margir ættu að kannast við. Hugmyndin er að senda samtalið út en leikreglur verða kynntar nánar þegar á staðinn er komið.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.41.2012