Kínó klúbburinn. Hafnarhús, fimmtudag 3. júní kl. 20
An upcoming exhibition
Á sameiginlegri dagskrá Kínó klúbbsins og Listasafns Reykjavíkur næstkomandi fimmtudagskvöld eru sýnd verk eftir þrjá margverðlaunaða kvikmyndagerðar- og vídeólistamenn sem leitast við að umbreyta hversdagslegum raunveruleika sínum ramma fyrir ramma.
Dagskrá:
Matt McCormick:
The Problem with Machines (That Communicate), 2008, HD, 13 mínútur.
The Subconscious Art of Graffiti Removal, 2001, 16mm/stafrænt vídeó, 16 mínútur.
Sincerely, Joe P. Bear, 1999, 16mm, 4 mínútur.
Bill Brown:
Roswell, 1994, 16mm, svarthvít/lit, 20 mínútur.
Miranda July:
Atlanta, 1996, vídeó, 10 mínútur.
Nest of Tens, 2000, vídeó, 27 mínútur.
Aðgangur er ókeypis.
Matt McCormick
Matt hefur sýnt kvikmyndir sínar á Sundance Film Festival, MoMA, Serpentine Gallery, Oslo Museum of Modern Art, Listasafni Reykjavíkur, Seattle Art Museum, Moscow Biennial og Art Basil. Hann hefur meðal annars hlotið verðlaun fyrir bestu stuttmyndina á San Francisco International Film Fest, bestu tilraunamyndina á New York Underground Film Fest og bestu stuttmyndina á Ann Arbor Film Festival. Sjá nánar http://www.rodeofilmco.com
Bill Brown
Bill er rithöfundur, kvikmyndagerðarmaður og listamaður. Kvikmyndir hans hafa verið sýndar mjög víða í kvikmyndahúsum, háskólum og söfnum í Bandaríkjunum. Efnistök hans eru mjög fjölbreytt, þar sem meðal annars koma við sögu gestir frá geimnum (í Roswell) og útlendingar handan landmæra (í The Other Side) í afar persónulegum stíl. Bill Brown gefur einnig út tímaritið Zine Dreamwhip.
Miranda July
Miranda er kvikmyndagerðarmaður, listamaður og rithöfundur. Myndbönd hennar, gjörningar, og verkefni á vefnum hafa verið sýnd meðal annars í MoMa, Guggenheim Museum og á tveimur Whitney tvíæringum. July skrifaði, leikstýrði og lék í fyrstu kvikmynd sinni í fullri lengd, Me and You and Everyone We Know (2005), sem hlaut sérstök verðlaun dómnefndar á Sundance Film Festival og Camera d'Or verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Sjá nánar http://mirandajuly.com/
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.44.2012