Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Smíðaðu eigin myndavél og framkallaðu á staðnum - Fjölskyldusmiðja. Kjarvalsstaðir, laugardag 5. júní kl. 13 - 16

An upcoming exhibition

Listsmiðja

Það er í raun sáraeinfalt að smíða sína eigin myndavél og framkalla myndir. Þessu fá börn og fjölskyldufólk að kynnast í smiðju sem sett verður upp í tengslum við sýningarverkefnið Ljós&mynd.

Kassa myndavélin (pinhole myndavél) er mjög einföld myndavél án linsu. Hún er einfaldlega kassi með mjög litlu gati á einni hliðinni. Ljós frá umhverfinu fer í gegnum þetta litla gat og lýsir andhverfri fyrirmyndi á bakhlið kassans. Í smiðjunni næstkomandi laugardag mun ljósmyndarinn Pétur Thomsen aðstoða börn og fjölskyldur þeirra að smíða slíka vél, en allt sem þarf til er kassi með örlitlu gati og ljósnæmur pappír eða filma til að fanga fyrirmyndina, en hið síðarnefnda fá gestir á staðnum sér að kostnaðarlausu. Myndirnar geta þátttakendur svo tekið með sér heim.

Í ljósmyndasmiðjunni læra þátttakendur að nota myndavélina til að taka ljósmyndir og fá einnig tækifæri til að kynnast töfrum myrkraherbergisins og hvernig myndin framkallast á pappír.

Þátttakendur eru hvattir til að koma með kassa eða dósir til að smíða myndavélina sína, en best er að umbúðirnar séu ekki mjög stórar. Það sem hægt er að nota er t.d. kassi undan morgunkorni, snakk baukur, safa fernur og jafnvell rauða papriku eða appelsínur. Umbúðirnar verða þó að vera þannig að hægt sé að gera þær ljósheldar.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur og efni er ókeypis.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.44.2012