Fréttir / tilkynningar
Vanitas - Fyrirlestur og leiðsögn. Hafnarhús, sunnudag 6. júní kl. 15
Hugtakið vanitas verður krufið til mergjar í fyrirlestri Hafþórs Yngvasonar safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, en hann er jafnframt sýningarstjóri sýningarinnar Vanitas, kyrralíf í íslenskri samtímalist í Hafnarhúsinu. Að lokunum fyrirlestri fer Hafþór með gestum um sýninguna og ræðir það sem fyrir augu ber. Sýningin stendur til 29. ágúst.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Vanitas, kyrralíf í íslenskri samtímalist
Sýning á myndverkum sem flokka má sem kyrralífsmyndir þó að í mörgum tilfellum hafi þau ekki verið hugsuð sem slík.
Með því að setja verkin í nýtt samhengi listasögunnar er ætlunin að draga fram ákveðin einkenni á efnistökum og uppsetningu verkana en einnig að beina athyglinni að þeirri áminningu um hverfugleika og endurnýjun sem má finna í mörgum þeirra.
Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Dieter Roth, Bragi Ásgeirsson, Ólöf Nordal, Haraldur Jónsson, Áslaug Thorlacius, Rósa Gísladóttir, Spessi, Ragnhildur Stefánsdóttir, Ólafur Gíslason og Jóhannes S. Kjarval.
Prenta Til baka