Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Vanitas - Fyrirlestur og leiðsögn. Hafnarhús, sunnudag 6. júní kl. 15

An upcoming exhibition

Hugtakið vanitas verður krufið til mergjar í fyrirlestri Hafþórs Yngvasonar safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, en hann er jafnframt sýningarstjóri sýningarinnar Vanitas, kyrralíf í íslenskri samtímalist í Hafnarhúsinu. Að lokunum fyrirlestri fer Hafþór  með gestum um sýninguna og ræðir það sem fyrir augu ber. Sýningin stendur til 29. ágúst.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Vanitas, kyrralíf í íslenskri samtímalist
Sýning á myndverkum sem flokka má sem kyrralífsmyndir þó að í mörgum tilfellum hafi þau ekki verið hugsuð sem slík.
Með því að setja verkin í nýtt samhengi listasögunnar er ætlunin að draga fram ákveðin einkenni á efnistökum og uppsetningu verkana en einnig að beina athyglinni að þeirri áminningu um hverfugleika og endurnýjun sem má finna í mörgum þeirra.
 
Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru Dieter Roth, Bragi Ásgeirsson, Ólöf Nordal, Haraldur Jónsson, Áslaug Thorlacius, Rósa Gísladóttir, Spessi, Ragnhildur Stefánsdóttir, Ólafur Gíslason og Jóhannes S. Kjarval.

Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.46.2012