Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Listaverkaganga í Viðey. Sunnudag 13. júní kl. 14:30

An upcoming exhibition

Heiðar Kári Rannversson verður með leiðsögn um listaverkin í Viðey næstkomandi sunnudag og ræðir um Friðarsúlu Yoko Ono og Áfanga eftir hinn kunna, bandaríska listamann Richard Serra.
Heiðar Kári útskrifaðist með BA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands vorið 2009 en lokaverkefni hans fjallaði um listaverkin í Viðey. Í leiðsögn sinni skoðar Heiðar Kári tengsl verkanna við umhverfið og áhorfendur.
Lagt verður af stað frá Viðeyjarkirkju stundvíslega kl. 14:30. Allir eru velkomnir en gangan tekur um eina og hálfa klukkustund.

FRIÐARSÚLAN
Þann 9. október 2007 var friðarljósið í listaverkinu Imagine Peace Tower eða Friðarsúlunni tendrað. Verkið er tileinkað minningu John Lennons sem hefði þá orðið 67 ára gamall. Á hverju ári lýsir Friðarsúlan frá fæðingardegi Lennons til 8. desember sem er dánardagur hans. Einnig er kveikt á ljósinu á gamlársdag, á jafndægri að vori og á sérstökum hátíðardögum sem listamaðurinn og Reykjavíkurborg koma sér saman um. Friðarsúlan er hvít að lit og myndar nokkurs konar óskabrunn, en á hann er rituð setningin Hugsið ykkur frið á 24 tungumálum.

ÁFANGAR
Í tengslum við Listahátíð 1990 var listaverkið Áfangar eftir bandaríska myndhöggvarann Richard Serra (f. 1939) reist á vesturhluta Viðeyjar. Verkið samanstendur af níu súlnapörum úr stuðlabergi sem ramma inn nærliggjandi kennileiti eða áfangastaði.
Serra er einn áhrifamesti myndhöggvari samtímans og er verkið gjöf hans til íslensku þjóðarinnar.
Súlnapörin eru þannig uppsett að önnur súlan er í níu metra hæð yfir sjó en hin er metra hærri eða tíu metrum yfir sjávarmáli. Súlurnar eru þó jafnar að ofan því sú sem lægra stendur er fjórir metrar á hæð en hin hærri þrír metrar. Bilið á milli súlnanna ræðst svo af halla landsins sem þær standa á.
 

Viðeyjarferjan:
Frá Skarfabakka, Sundahöfn kl. 11:15 - 12:15 - 13:15 - 14:15 - 15:15 - 16:15 og 17:15.
Frá Ægisgarði  kl. 12:00.
Frá  Viðey til Sundahafnar kl. 11:30 - 12:30 - 13:30 - 14:30 - 15:30 - 16:30 - 17:30 og 18:30.
Frá Viðey að Ægisgarði kl. 15:30.
Ferjutollur:
Börn 0 - 6 ára ókeypis                                                
Börn 6 - 18 ára (í fylgd með fullorðnum) kr. 500.-
Fullorðnir 18 - 67 ára   kr. 1.000.-
Eldri borgarar, námsmenn og öryrkjar   kr. 900.-

Viðeyjarstofa er opin og býður upp á úrval veitinga.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.47.2012