Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. Hafnarhús, fimmtudag 10. júní kl. 20

Ásmundur Sveinsson, Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku, 1938Afsteypa af höggmyndinni Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku eftir Ásmund Sveinsson var sett upp í Þjóðmenningarsafni Kanada (Canada Museum of Civilization) árið 2000. Frumgerð verksins er frá 1938 en hún var sýnd á heimssýningunni í New York árið 1939. 

Í fyrirlestri sínum næstkomandi fimmtudagskvöld mun Tinna Grétarsdóttir mannfræðingur fjalla um umrædda höggmynd Ásmundar með áherslu á hvernig listaverk kann að skipa miðlægt hlutverk í sköpun og miðlun menningararfs og sjálfsmyndar og hvernig það kann að ramma inn sögu þverþjóðlegra tengsla afkomenda Vestur-Íslendina við gamla landið.

Jafnframt ræðir Tinna um hvernig höggmyndin og afhjúpun hennar í öðru landi helst í hendur við útrásar orðræðu  íslenskrar nýfrjálshyggju og vöruvæðingar þjóðar.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00