Fréttir / tilkynningar
Japan í norðri - Nútímatónlistarhátíð. Kjarvalsstaðir, laugardag 12. og sunnudag 13. júní
Hin árvissa nútímatónlistarhátíð Frum, sem kammerhópurinn Adapter og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir, fer nú fram á Kjarvalsstöðum helgina 12. og 13. júní. Þema hátíðarinnar í ár er Japan í Norðri.
Megináhersla Frum hátíðarinnar er að kynna meistaraverk nútímatónbókmentanna fyrir tónlistarunnendum, verk sem þegar hafa sett mark sitt á tónlistarsöguna en eru þó sjaldheyrð í tónleikahúsum Reykjavíkur. Auk þessa eru alla jafnan flutt tónverk eftir yngri kynslóð tónskálda, íslenskra sem og erlendra.
Á fyrri tónleikunum verður leikin tónlist eftir Toru Takemitsu og Joji Yuasa en þeir eru tvö af stærstu nöfnum japanskrar samtímatónlistar. Þeir voru samtímamenn og vinir og stofnuðu meðal annars félagskapinn Jikken Kobo sem var tileinkaður tilraunum í framúrstefnulist.
Á seinni tónleikum hátíðarinnar verða frumflutt á Íslandi splunkuný verk frá Íslandi, Finnlandi og Þýskalandi.
Flytjendur á hátíðinni eru Gunnhildur Einarsdóttir hörpuleikari, Ingólfur Vilhjálmsson klarínettuleikari, Kristjana Helgadóttir flautuleikari, Marc Tritschler píanóleikari, Matthias Engler slagverksleikari og Þórarinn Már Baldursson víóluleikari.
Laugardagur 12. júní kl. 17:00
JAPANSKIR MEISTARAR
Toru Takemitsu (1930-1996) - Rain Spell (1982)
Toru Takemitsu - And then I knew 'twas Wind (1992)
Joji Yuasa (1929) - Bass Clarinet Solitude (1980)
Joji Yuasa - A Winter Day - Homage to Basho (1981)
Sunnudagur 13. júni kl. 20:00
Í NORÐRI
Paul Friedrich Frick - Destroy Erase Improve (2007)
Benjamin Schweitzer - Landscape with Deserted House (2010)
Antti Auvinen – Lifted (2007/2010)
Jarkko Hartikainen – Hologramme (2009)
Einar Torfi Einarsson - Seven Intensions (2009)
Guðmundur Steinn Gunnarsson - Draumbót (2010)
Almennt miðaverð er kr. 2.000,- /
Nemendur, eldri borgarar og öryrkjar kr. 1.500,-
Miðasala við innganginn.
Tónleikarnir eru hluti af stærra verkefni Adapter þar sem hópurinn leitast við að skapa tengsl milli samtímatónlistar mismunandi landa í norður Evrópu. Tónleikarnir verða einnig fluttir í júlí á Viitasaari hátíðinni í Finnlandi, í september á Nordic Music Days hátíðinni í Kaupmannahöfn og á tónlistarhátíðinni Nordlichter í Berlín.
Adapterliðar eru nýkomnir frá Ísrael þar sem þeir léku í Tel Aviv og Jerúsalem. Tónleikarnir í Jerúsalem voru hluti af hátíðinni Ísrael Festival sem er stærsta tónlistarhátíð Ísrael. Hópurinn fékk frábærar viðtökur á tónleikunum og endaði dvölina á því að ganga friðargöngu í Tel Aviv.
Sjá nánar: http://www.ensemble-adapter.de/english.htm
Prenta Til baka