Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Erró - Mannlýsingar - Dúkkur. 28. maí - 29. ágúst

An upcoming exhibition

Nýlega var opnuð í Hafnarhúsinu ný þemasýning á verkum úr Erró-safneigninni þar sem dúkkur eru í aðalhlutverki. Dúkkur eru ekki algengt myndefni í listasögunni, hvorki fyrr á tímum né nú á dögum og því kom Erró mörgum á óvart í lok 9. áratugar síðustu aldar þegar hann hóf að gera samklippimyndir og síðar málverk þar sem ljósmyndir af dúkkum, flestum frá því fyrir fyrri heimsstyrjöld, eru megin myndefnið.

Ljósmyndirnar af þessum dúkkum fann hann að mestu leyti í myndskreyttum almanökum.
Snilli og styrkur dúkkumynda Errós koma meðal annars fram í samtalinu milli brúðanna annars vegar, dauðra hluta með mannlega ásýnd, og portrett-mynda af mannfólki í sögulegu samhengi og með augljósa og sterka menningarlega og fagurfræðilega skírskotun hins vegar. Í brúðuverkunum skapar Erró heillandi frásögn um leið og verkin vekja spurningar um tengsl áhorfandans og raunveruleikans.

Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.

Sýningin stendur til 29. ágúst 2010.

Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.51.2012