Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Kennileiti minninganna - Kvöldgögnur í hverfunum. Fimmtudag, 1. júlí KL. 20:00

Sigurlaug Ragnarsdóttir annast leiðsögn um útilistaverk í miðbænum næstkomandi fimmtudagskvöld þegar lagt verður upp í fjórðu kvöldgönguna sem menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir.

Gangan tekur um klukkustund en í henni mun Sigurlaug kynna ólíkar aðferðir við miðlun útilistaverka, gildi miðlunar og upplifun einstaklings á henni. Í göngunni verður lögð áhersla á að skoða útilistaverk á hugmyndafræðilegum grundvelli og draga þannig fram nýjar áherslur og nýja sýn auk þess að vekja upp spurningar um mikilvægi verkanna.

Gangan hefst við listaverkið Miðja Reykjavíkur eftir Kristinn E. Hrafnsson á mótum Vesturgötu og Aðalstrætis.
Sigurlaug Ragnarsdóttir er listfræðingur og menningarmiðlari. Hún hefur rannsakað og safnað saman upplýsingum um útilistaverk í eigu og umsjón Reykjavíkurborgar með miðlun í huga.

Sýningarsalir og Súpubarinn í Hafnarhúsi eru opnir til kl. 22:00 öll fimmtudagskvöld. 

Aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar um gönguna veitir Sigurlaug Ragnarsdóttir í síma 699-4455. Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00