Fréttir / tilkynningar
Kennileiti minninganna - Kvöldgögnur í hverfunum. Fimmtudag, 1. júlí KL. 20:00
An upcoming exhibitionSigurlaug Ragnarsdóttir annast leiðsögn um útilistaverk í miðbænum næstkomandi fimmtudagskvöld þegar lagt verður upp í fjórðu kvöldgönguna sem menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir. Gangan tekur um klukkustund en í henni mun Sigurlaug kynna ólíkar aðferðir við miðlun útilistaverka, gildi miðlunar og upplifun einstaklings á henni. Í göngunni verður lögð áhersla á að skoða útilistaverk á hugmyndafræðilegum grundvelli og draga þannig fram nýjar áherslur og nýja sýn auk þess að vekja upp spurningar um mikilvægi verkanna. Gangan hefst við listaverkið Miðja Reykjavíkur eftir Kristinn E. Hrafnsson á mótum Vesturgötu og Aðalstrætis. Sigurlaug Ragnarsdóttir er listfræðingur og menningarmiðlari. Hún hefur rannsakað og safnað saman upplýsingum um útilistaverk í eigu og umsjón Reykjavíkurborgar með miðlun í huga. Sýningarsalir og Súpubarinn í Hafnarhúsi eru opnir til kl. 22:00 öll fimmtudagskvöld. Aðgangur er ókeypis. Nánari upplýsingar um gönguna veitir Sigurlaug Ragnarsdóttir í síma 699-4455.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.51.2012
|