Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Reykjavík safarí. Fimmtudag 8. júlí kl. 20

An upcoming exhibition

Menningarlífið í miðborginni kynnt á spænsku, ensku, pólsku,tælensku og litháísku. Veist þú hvar bókasöfnin og söfnin, leikhúsin, stytturnar og skemmtilegu staðirnir eru? Hvað er ókeypis? Hvað gerist um helgar? Hvað er fyrir börn, fjölskyldur og fullorðna? Fimmtudagskvöldið 8. júlí kl. 20 bjóða menningarstofnanir Reykjavíkurborgar til kvöldgöngu þar sem menningarlífið í miðborginni verður kynnt á fimm tungumálum. Þátttakendur geta valið um leiðsögn á ofangreindum tungumálum, en hóparnir fimm hittast í lok göngunnar í Hafnarhúsinu þar sem boðið verður upp á hressingu. Etna Lupita Mastache, danskennari, mun sýna nokkur leikandi létt dansspor og þeir sem vilja geta tekið þátt.
Kvöldgöngur í hverfunum er samstarfsverkefni Borgarbókasafns, Listasafns, Ljósmyndasafns og Minjasafns Reykjavíkur.
Lagt verður af stað frá Grófarhúsi (Tryggvagötu 15) kl. 20 og tekur gangan um klukkustunden dagskránni í Hafnarhúsinu lýkur um kl. 22.
Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir!



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.55.2012