Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

MENNINGARNÓTT, laugardag 21. ágúst 10 - 23

Grænlenskt rokk, djöfullegir djasstónar og listrænt jóga er meðal þeirra óvæntu Menningarnæturviðburða, sem Listasafn Reykjavíkur býður gestum upp á næsta laugardag.
Hafnarhús, Kjarvalsstaðir og Ásmundarsafn iða af lífi og fjöri frá morgni til  kvölds með metnaðarfullri dagskrá, sem sniðin er að menningarþyrstum gestum á öllum aldri.

HAFNARHÚS    OPIÐ 10 - 23

15 - 20   Veiðimenn norðursins eftir RAX
Stórfenglegar ljósmyndir af menningu, náttúru og umhverfi Norðurheimskautssvæðisins fá að njóta sín á risastóru sýningartjaldi Hafnarhússins. Ljósmyndarininn Ragnar Axelsson hefur undanfarin þrjátíu ár fylgst með og skráð breytingar á lífsháttum íbúa í Kanada, Alaska og Grænlandi og sýnir afraksturinn á Menningarnótt.
15 – 16   Fjölskylduleiðsögn
Myndlistarmaðurinn Huginn Þór Arason leiðir fjölskyldufólk um sýningar Hafnarhússins.
16 – 16:30    Grænlenskir tónar
Grænlenski kórinn Qeqqani Erinarsoqatigiit/Midtgrønlands flytur nokkur lög undir stjórn Tilken Jakobsen.
17 – 18    Fjölskylduleiðsögn
Myndlistarmaðurinn Huginn Þór Arason leiðir fjölskyldufólk um sýningar Hafnarhússins.
18 – 18:30   Andlegt og veraldlegt frá Grænlandi
Einn stærsti kór Grænlands, Samkórinn í Tasiilaq (Ammassalik), syngur andleg og veraldleg lög frá Grænlandi.
19 – 20    Fjölskylduleiðsögn
Myndlistarmaðurinn Huginn Þór Arason leiðir fjölskyldufólk um sýningar Hafnarhússins.
20 – 21   In the Beginning
Ljóðrænt og heillandi leikverk eftir hinn unga og efnilega leikara Inga Hrafn Hilmarsson. Leikari með honum er Kane Husbands. Takmarkað sætaframboð.

KJARVALSSTAÐIR OPNIR 10 - 22

14 - 15   Jógað undir áhrifum Kjarvals
Það er tilvalið að hefja Menningarnótt með andlegri og líkamlegri næringu í návist meistara Kjarvals. Jógakennarinn Ásta María Þórarinsdóttir leiðbeinir gestum í jóga og ómi innan um mörg af fegurstu verkum  hins ástsæla listamanns. Vinsamlegast komið dýnur eða teppi.
15 - 22  Viltu sýna á Kjarvalsstöðum?
Blásið er til ljósmyndasýningar á Menningarnótt þar sem gestum og gangandi er boðið að koma með ljósmyndir úr fórum sínum og hengja upp á Kjarvalsstöðum.
15 - 16   Kjarval fyrir útlendinga
Leiðsögn á ensku um sýninguna Kjarval - Lykilverk.  Á sýningunni eru mörg af fegurstu verkum  Kjarvals í eigu Listasafnsins Reykjavíkur, sem saman mynda einstakt og magnað yfirlit yfir feril þessa ástsæla listamálara.
16 - 17 Fjölskylduleiðsögn og sjónhverfingar
Töfrar ljósmyndatækninnar verða afhjúpaðir í myrkvuðum norðursalnum (Camera Obscura) í dagskrá sem helguð er börnum og fjölskyldufólki. Ljósmyndasýningin Annað auga í vestursalnum verður einnig skoðuð með þarfir og væntingar ungra gesta í huga.
17– 18  Það besta af Kjarval
Leiðsögn þar sem skoðuð og rædd verða helstu og eftirtektarverðustu verk Kjarvals í eigu Listasafns Reykjavíkur.
18 – 19   Djöfullegir dansar og dularfullur hrynur
Djöfullegir dansar, villtur og dularfullur hrynur í bland við dáleiðandi laglínur er framlag belgíska bandsins BalgistaN til Menningarnætur. Hópurinn samanstendur af fimm blásurum og tveimur slagverksleikurum og kemur einnig fram á Jasshátíð í Reykjavík.
19 – 20  Eftirsóttustu listamenn samtímans
Það er ekki oft sem einkasafnarar opna upp hirslur sínar fyrir almenningi, en á sýningunni Annað auga er boðið upp á lítið brot af hinu einstaka listaverkasafni sem Pétur Arason og Ragna Róbertsdóttir hafa komið sér upp. Sýningarstjórinn, Birta Guðjónsdóttir, fer með gestum um sýninguna sem státar af ljósmyndaverkum eftir marga af eftirsóttustu listamönnum samtímans á veraldarvísu.
20 - 21 Ólöf Ingólfs, Ragga Gísla og Krummi
Reykjavík Dans Festival verður þjófstartað á Menningarnótt með brotum úr verkum, sem flutt verða á hátíðinni sjálfri dagana 1. - 5. september. Meðal atriða sem sýnd verða eru Eins og vatnið eftir Ólöfu Ingólfsdóttur við tónlist Ragnhildar Gísladóttur og Þá skal ég muna þér kinnhestinn eftir Dansfélagið Krumma.

ÁSMUNDARSAFN  OPIÐ 10 – 16

Á Menningarnótt verður Ásmundarsafn opið frá kl. 10 – 16 en þar eru núna uppi sýningarnar „Ég kýs blómlegar konur . . .“  - Konan sem tákn í list Ásmundar Sveinssonar og Svefnljós Ráðhildar Ingadóttur. Höggmyndagarðurinn stendur öllum opinn og er tilvalinn áningastaður fyrir þá sem vilja taka því rólega á Menningarnótt.
Veitingastaðir á Kjarvalsstöðum og í Hafnarhúsi verða opnir á Menningarnótt og bjóða upp á úrval girnilegra rétta á góðu verði. Frítt kaffi í Ásmundarsafni.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00