Fréttir / tilkynningar
Annað auga - Sýningarlok. Sunnudag 22. ágúst
Það er fágætt meðal opinberra safna að eiga þess kost að fá heildstæða, en jafnframt mótaða sýningu úr einkaeigu listaverkasafnara, eins og nú er raunin á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni Annað auga eru til sýnis um sextíu ljósmyndaverk eftir marga af eftirsóttustu listamönnum samtímans á veraldarvísu, en verkin eru öll í eigu listaverkasafnaranna Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur. Safneign þeirra telur um eitt þúsund verk, sem er ein stærsta einkasafneign á Íslandi.
Sýningin var á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2010, en lýkur næstkomandi sunnudag, 22. ágúst.
Sýningarstjóri er Birta Guðjónsdóttir.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega 10 – 17.
Missið ekki af frábærri dagskrá í tengslum við sýninguna á Menningarnótt!
Prenta Til baka