Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Nekt – Gary Schneider - Sýningarlok. Föstudag 27. ágúst

Þrjátíu ögrandi myndir af nöktum líkömum í raunstærð, eftir hinn heimskunna ljósmyndara Gary Schneider, eru á sýningunni Nekt, sem staðið hefur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi frá því um miðjan maí. Sýningunni lýkur næstkomandi föstudag, en enginn áhugamaður um ljósmyndun ætti að láta hana fram hjá sér fara.
Hafnarhúsið er opið daglega frá kl. 10 – 17 og alla fimmtudaga 10 – 22.

Ljósmyndarinn Gary Schneider fæddist í Suður Afríku árið 1954 en býr og starfar í New York. Í texta eftir ljósmyndarann Einar Fal Ingólfsson um sýninguna segir m.a. að verk Garys séu „...í senn málverk og ljósmyndir; filman skráir það sem listamaðurinn lýsir upp á löngum tíma. Ljósið málar fyrirsætuna á filmuna.

Fyrirsætan liggur á svörtu klæði á gólfi, í myrkvuðu rýminu. Linsa myndavélarinnar er opin í allt að klukkustund og á meðan lýsir Schneider líkamann með litlu vasaljósi. Hann byrjar á andlitinu hægra megin, færir sig svo rólega niður eftir líkamanum þeim megin, fer síðan upp eftir vinstri hluta líkamans og endar á vinstri hluta höfuðsins.
Ef lýst er lengur á einn hluta en annan verður sá hluti bjartari á myndinni.

Sýningar á verkum Gary Schneiders hafa ratað í mörg af stærstu listasöfnum Bandaríkjanna og Evrópu og eru verk hans einnig hluti af safneign margra þeirra. Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00