Fréttir / tilkynningar
Þar sem krakkar mega klifra. Sunnudag. 29. ágúst kl. 14
Ásmundarsafn er einn af þessum dýrmætu stöðum í borginni þar sem áhugavert umhverfi og rými renna saman í skemmtilega upplifun bæði innan húss og utan.
Í upphafi skólaárs og í umskiptum sumars yfir í haust er upplagt fyrir fjölskylduna að skoða sýninguna Ég kýs blómlegar konur... og endurgerð af vinnustofu Ásmundar Sveinssonar í fylgd með Klöru Þórhallsdóttur, myndlistarmanni og kennara.
Leiðsögnin tekur um 30-45 mínútur.
Söfn eru frábærir staðir fyrir fjölskyldur til að eiga góða stund saman og er Ásmundarsafn sérstaklega hentugt því þar er hægt að spóka sig um í fallegum garði fullum af spennandi formum og styttum sem jafnvel má klifra í.
Það er löng hefð fyrir því að leyfa krökkum að klifra í styttum Ásmundar því hann leyfði það sjálfur meðan hann lifði. Það gildir aðeins ein regla: Ef styttan er hvít og minni en mannshæð þá má ekki klifra í henni en annars er velkomið að skoða þær og kanna frá hinum ýmsu sjónarhornum.
Ásmundarsafn er opið daglega í sumar kl. 10 - 16.
Allir velkomnir, aðgangur er ókeypis.
Prenta Til baka