Fréttir / tilkynningar
Sýningalok í Hafnarhúsi. Sunnudag 29. ágúst
An upcoming exhibitionÍ safni ófullkomleikans Innsetning Unnars Arnar er byggð utanum samansafn af gripum sem fengnir eru að láni úr söfnum og geymslum. Sýningin teygir þannig anga sína út fyrir Listasafnið og skapar samtal um forsendur tengdar skrásetningu og hlutverki safna í samtímanum. Vanitas, kyrralíf í íslenskri samtímalist Sýning á myndverkum sem flokka má sem kyrralífsmyndir þó að í mörgum tilfellum hafi þau ekki verið hugsuð sem slík. Með því að setja verkin í nýtt samhengi listasögunnar er ætlunin að draga fram ákveðin einkenni á efnistökum og uppsetningu verkana en einnig að beina athyglinni að þeirri áminningu um hverfugleika og endurnýjun sem má finna í mörgum þeirra. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.
Hafnarhús er opið daglega 10-17 og til kl. 22 öll fimmtudagskvöld.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.03.2012
|