Fréttir / tilkynningar
Með viljann að vopni - Endurlit 1970-1980. Laugardag 4. september kl. 16
An upcoming exhibitionSögulegra tímamóta kvenfrelsisbaráttunnar verður minnst á sýningunni Með viljann að vopni – Endurlit 1970–1980, sem frú Vigdís Finnbogadóttir mun opna á Kjarvalsstöðum. Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram. Á sýningunni er megin áherslan lögð á áttunda áratug síðustu aldar, sem var fyrir margra hluta sakir viðburðaríkur á ýmsum sviðum íslensks samfélags, jafnt efnahagslega sem félags- og menningarlega. Oft er skírskotað til hans sem „kvennaáratugarins“ en nýja kvennahreyfingin, sem nefnd hefur verið önnur bylgja femínisma og laust niður sem eldingu austan hafs og vestan, barst einnig til Íslands og fór af stað á fullri ferð. Á sýningunni er litið aftur til áranna 1970-1980 en sýnendurnir tuttugu og sjö eiga það sameiginlegt að vera meðal þeirra fjölmörgu, íslensku kvenna sem þá störfuðu að myndlist. Margar þeirra komust til þroska í andrúmi þessa tíma, þótt aðrar hafi þá þegar verið mótaðar. Meðal viðburða sem mörkuðu kvennaáratuginn eru stofnun Rauðsokkahreyfingarinnar og skipun fyrsta kvenráðherrans, Auðar Auðuns, fyrir fjörutíu árum. Fyrsti kvennafrídagurinn var skipulagður fyrir 35 árum og Vigdís Finnbogadóttir var kjörin í embætti forseta fyrir þrjátíu árum. Auk þess er vert að minnast þess að á þessu ári er öld liðin frá því að íslenskar konur öðluðust kosningarétt í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum. Sýningunni verður fylgt úr hlaði með ýmsu móti. Gefin verður út bók, prýdd fjölda mynda og efnt verður til fjölmargra viðburða sem tengjast kvennaáratugnum og unnir eru í samstarfi við Skotturnar, opinn samstarfsvettvang ætlaðan til virkni í þágu jafnsréttisbaráttu, með kvennafrídaginn sem útgangspunkt. k(v)k-smiðja í tenslum við sýninguna Með viljann að vopni Jafnrétti kynjanna, kvenleiki og karllæg viðhorf fá á sig áhugaverða mynd í norðursal Kjarvalsstaða í k(v)k-smiðju, sem verður opnuð í tengslum við sýninguna Með viljann að vopni. Þar býðst fjölskyldum og nemendum að glíma við spurningar og verkefni er varða jafnréttismál með það að markmiði að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu og vekja ungt fólk til umhugsunar. k(v)k-smiðja er unnin í samstarfi við höfunda Kynungabókar sem gefin var út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu í ágúst 2010, Ragneiði Bjarnarson, dansara og Skotturnar – opinn samstarfsvettvang ætlaðan til virkni í þágu jafnréttisbaráttu, með kvennafrídaginn sem útgangspunkt.
Sýnendur
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.07.2012
|