Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Svefnljós Ráðhildar Ingadóttur. Ásmundarsafn, sunnudag 5. september kl. 14

Ráðhildur Ingadóttir

Í kúlunni í Ásmundarsafni stendur nú yfir innsetning Ráðhildar Ingadóttur sem nefnist Svefnljós.
Á sunnudaginn mun Ráðhildur ræða verk sitt en það stendur saman úr rýminu sjálfu og einstakri hljóðmyndun þess, tölvu, handspegli, ljósvarpa og skugga. Verkið er einstakt að því leyti að gestir verða að gefa sér tíma til að upplifa það, en tíminn er bundinn líffræðilegri virkni hvers og eins.

Ráðhildur er meðal þekktari og virtustu myndlistarmönnum þjóðarinnar og hefur haldið fjölda einka- og samsýninga heima og erlendis. Hún býr og starfar jöfnum höndum á Íslandi og í Danmörku.

Aðgangur er ókeypis.

Ásmundarsafn er opið daglega í september frá kl. 10-16.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00