Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Indian Highway og D17 – Magnús Helgason, fimmtudag 9. september kl. 17

An upcoming exhibition

INDIAN HIGHWAY
Miklar breytingar hafa átt sér stað í menningarlífi Indverja undanfarna áratugi samhliða róttækri umbyltingu á sviði samfélags- og efnahagsmála. Á sýningunni er ljósi varpað á þróun indversks samfélags með 26 skjáverkum eftir indverska listamenn, sem allir eru fæddir eru á áttunda áratug síðustu aldar. Sýningin stendur til 10. október. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.

Eiginlegt þema sýningarinnar Indian Highway byggir á mikilvægi hraðbrauta í efnislegum og óefnislegum skilningi. Þær eru forsenda hreyfinga, uppbyggingar og flutninga í landfræðilegu tilliti og hafa í tæknilegu tilliti haft gríðarleg áhrif á öran hagvöxt á Indlandi undanfarna áratugi. Verkin á sýningunni fjalla um almenn viðfangsefni eins og lýðræði, umhverfi, trúarbrögð, kynþætti, kynja hlutverk og stöðu.

Fyrsta Indian Highway sýningin var opnuð í Serpentine Gallery í London í árslok 2008 og ári síðar í Astrup Fearnley samtímalistasafninu í Osló. Sýningarstjórarnir Julia Peyton-Jones og Hans-Ulrich Obrist, stjórnendur Serpentine Gallery og Gunnar B. Kvaran, stjórnandi Astrup Fearnley safnsins völdu listamenn sem þegar hafa látið að sér kveða á hinum alþjóðlega myndlistarvettvangi og sömuleiðis listamenn sem eru minna þekktir í hinum vestræna heimi. Með sýningunni vilja þau kynna til sögunnar nýja og þróttmikla kynslóð indverskra listamanna sem vinna í fjölbreytta miðla á borð við málun, ljósmyndun, höggmyndalist, innsetningar, margmiðlun og skjálist. Hugmynd sýningarstjóranna var einnig að sýningin myndi ferðast á milli landa og fá nýtt yfirbragð á hverjum sýningarstað. Sem stendur er ein útfærsla sýningarinnar núna uppi í Herning samtímalistasafninu í Danmörku og mun hún ferðast þaðan til fjölmargra staða m.a. til Delhi á Indlandi.

Sýnd eru skjáverk eftir 25 indverska samtímalistamenn ásamt verki eftir eitt listamannateymi. Sýningarstjórarnir völdu tíu listamenn til að sýna á sýningu Hafnarhússins en eftirlétu svo einum listamanninum, Shilpa Gupta og listamannateyminu, Raqs Media Collective, að gera nokkurs konar sýningu inn í sýninguna, með því að velja hvoru um sig átta listamenn í þeim tilgangi að krydda sýninguna og fá fram sjónarmið og skoðanir heimamanna á stöðu Indlands í dag.

Sýnendur eru:
Ayisha Abraham, Ravi Agarwal , Shilpa Gupta, Subodh Gupta,  Abhishek Hazra,  Amar Kanwar, Raqs Media Collective, Tejal Shah, Kiran Subbaiah, Ashok Sukumaran, Nikhil Chopra, Baptist Coelho, Sunil Gupta, Tushar Joag, Sonia Khurana, Nalini Malani, Kiran Subbaiah, Vivan Sundaram, Debkamal Ganguly, Ruchir Joshi, Kavita Pai / Hansa Thapliyal, MR Rajan Raghavan, Priya Sen, Raqs Media Collective, Surabhi Sharma (með Siddharth Gautam Singh) og Vipin Vijay.

D17– MAGNÚS HELGASON
Myndir sem  gleðja augað og hitta áhorfandann rakleitt í hjartastað eru listamanninum Magnúsi Helgasyni hugleiknar. Yfirskrift sýningar hans er Ég er ekki safnhaugur, ég er ánamaðkur – Garðyrkjustörf með málningu, en verk hans mótast af röð tilviljana, sem eru færð í stílinn til að ná fram rétta yfirbragðinu. Magnús Helgason lauk námi frá AKI, Akademie voor beel­dende kunst í Enschede í Holland árið 2001. Hann hefur kennt við LHÍ, haldið málverkasýningar og unnið fjölmargar sýningar við tónlistarflutning þekktra tónlistarmanna. Sýningin stendur til 24. október.
Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.09.2012