Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Ballöður og Beethoven með Tríói Reykjavíkur. Kjarvalsstaðir, föstudag 10. september kl. 12:15

Tríó ReykjavíkurListasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið verið í samstarfi um ókeypis hádegistónleikaröð á Kjarvalsstöðum við góðar undirtektir. Á tónleikum næstkomandi föstudag kennir ýmissa grasa allt frá kunnuglegum ballöðum eftir íslensk og erlend tónskáld til píanótríós í B-dúr eftir Beethoven.
Efnisskrá:
Söngur fuglanna, katalónskt þjóðlag í úts. P.Casals
William Henry Squire: Tarantella Op.23
Þórarinn Guðmundsson: Þú ert
Atli Heimir Sveinsson: Intermezzo úr Dimmalimm
Jórunn Viðar: Vökuró
Magnús Blöndal Jóhannsson: Sveitin milli sanda
Ludwig van Beethoven: Píanótríó Op.97 í  B-dúr
                        Andante cantabile
                        Allegro Moderato

Tríó Reykjavíkur er skipað tónlistarfólki úr fremstu röð; þeim Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara, Gunnari Kvaran sellóleikara og Peter Máté píanóleikara.

Tónleikarnir eru um  45 mínútur að lengd.
Veitingastaður Kjarvalsstaða býður upp á úrval léttra rétta fyrir og eftir tónleika.

AÐGANGUR ER ÓKEYPIS OG
ALLIR ERU VELKOMNIR
 

TRÍÓ REYKJAVÍKUR
Tríó Reykjavíkur var stofnað árið 1988 af Halldóri Haraldssyni píanóleikara, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara. Árið 1996 tók Peter Máté píanóleikari við af Halldóri.

Á ferli sínum hefur Tríóið komið fram á fjölmörgum tónleikum víða um Ísland og einnig farið í tónleikaferðir til Danmerkur og auk þess komið fram í Þýskalandi, Finnlandi, Prag og London og einnig leikið í hinu nýja tónlistarhúsi Grænlendinga. Hljóðritanir með leik tríósins hafa verið leiknar víða í evrópskum útvarpsstöðvum. Geisladiskur kom út árið 2000. Meðlimir tríósins eru allir kennarar við tónlistardeild Listaháskóla Íslands og er tríóið staðarkammerhópur skólans.

Tríóið fór í sína fyrstu tónleikaferð til Bandaríkjanna árið 2003, þar sem það kom m.a. fram í beinni útsendingu á klassísku útvarpsstöðinni í Chicago. Sumarið 2006 fór Tríó Reykjavíkur í tónleikaferð til Suður-Frakklands. Tríó Reykjavíkur var útnefnt tónlistarhópur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2007 og hlaut þá jafnframt þriggja ára styrk frá borginni til starfsemi sinnar.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00