Fréttir / tilkynningar
Fyrirlestur um Tomi Ungerer. Hafnarhús, mánudag 23. maí kl. 17.
Thérèse Willer, safnstjóri Tomi Ungerer safnsins í Strasbourg, Frakklandi er stödd hér á landi í tilefni af sýningu hins margverðlaunaða teiknara og rithöfundar í Hafnarhúsinu. Mánudaginn 23. maí kl. 17 flytur hún fyrirlestur í fjölnotasal Hafnarhússins þar sem hún fer yfir feril listamannsins og verkin á sýningunni, sem spanna allt frá barnamyndum til verka sem ekki eru ætluð börnum.
Tomi Ungerer er fjölþjóðlegur og margverðlaunaður teiknari og rithöfundur, sem gefið hefur út yfir 140 bækur, allt frá eftirsóttum barnabókum til umdeildra fullorðinsbókmennta. Hann er kunnur fyrir beitta samfélagslega kaldhæðni en verk hans hafa einnig beinst gegn félagslegum - og stjórnmálalegum breytingum sem urðu í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar.
Fyrirlesturinn fer fram á frönsku og verður þýddur á íslensku á staðnum.
Viðburðurinn er skipulagður af Alliance Française og Franska sendiráðinu á Íslandi í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur.
Sýningin er unnin í samstarfi við Alliance Française, Sendiráð Frakklands, Sendiráð Þýskalands, Goethe Institute og Tomi Ungerer Museum í Strasbourg.
Prenta Til baka