Fréttir / tilkynningar
Viltu vera memm? Hafnarhús, laugardag 4. júní kl. 14 - 16.
Boðið verður upp á skemmtilega og fjölþjóðlega fjölskyldudagskrá í Hafnarhúsinu í tengslum við sýninguna Tomi Ungerer – Teikningar og veggspjöld næstkomandi laugardag.
Tomi Ungerer er heimskunnur teiknari og rithöfundur sem hefur gefið út yfir 70 bækur sem komið hafa út á yfir 30 tungumálum. Lesið verður upp úr bókum listamannsins og farið í skemmtilega smiðju á eftir.
Dagskráin hefst klukkan 14:00 með upplestri úr bók Tomi Ungerer Amis-amies, sem á íslensku mætti þýða sem Viltu vera memm? Sagan segir frá raunverulegum og ímynduðum vinum sem eru af ólíkum uppruna. Bókin er á frönsku en verður þýdd á íslensku á staðnum um leið og gestum gefst tækifæri til að læra einföld, frönsk orðtök.
Klukkan 15:00 hefst bókaupplestur úr einni af þekktari bókum Tomis, Die drei Räuber eða Ræningjunum þremur. Bókin er á þýsku en verður þýdd á íslensku á staðnum og gestir fá að glíma við þýsk orð sem koma fyrir í bókinni. Að upplestri loknum verður boðið upp á ýmis skemmtileg verkefni og þrautir í smiðju.
Viðburðurinn er skipulagður í samvinnu við Alliance Française, Franska sendiráðið og Þýska sendiráðið á Íslandi.
Prenta Til baka