Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Santiago Sierra - sýningaropnun - gjörningur - bíó

An upcoming exhibition


160 CM LINE TATTOOED ON 4 PEOPLE, El Gallo Arte Contemporáneo. Salamanca, Spain. December 2000

Innreið hins pólitíska og umdeilda listamanns Santiagos Sierras í íslenskan veruleika hefur vakið gríðarlega eftirtekt og mikil viðbrögð, en sýning hans verður opnuð í Hafnarhúsi – Listasafni Reykjavíkur föstudagskvöldið 20. janúar. Santiago hefur þegar látið að sér kveða með atvinnuauglýsingum í dagblöðum og á mánudag kl. 14 hófst fjögurra daga gjörningur listamannsins fyrir utan Alþingishúsið á Austurvelli þegar alþingi kom saman að nýju eftir jólafrí.

Listamaðurinn hefur valið fjölmarga áfangastaði innan borgarmarkanna þar sem umræddur gjörningur, NO, Global Tour fer fram, en allir tengjast staðirnir ádeilu hans á kapítalskt markaðshagkerfi og efnahagshruni Íslands á einhvern hátt.


Reykjavík 16. janúar 2012.

Gjörningurinn NO, Global Tour felst í því að risavöxnum skúlptúr, sem gerður er úr stöfunum NO, er ekið um borgina á vörubílspalli. Verkið er þriggja metra hátt, fjögurra metra breitt og vegur eitt og hálft tonn að þyngd. Því mun verða stillt upp við þá staði og byggingar sem listamaðurinn deilir á.

Gjörningurinn er hluti af stærra verkefni Santiagos Sierras, sem hefur staðið yfir sleitulaust víða um heim frá árinu 2009 þegar NO skúlptúrinn lagði upp í sína fyrstu ferð frá Lucca á Ítalíu. Frá þeim tíma hefur gjörningurinn farið víða um Evrópu, Bandaríkin, Kanada, Ástralíu og Japan, en Ísland er fyrsti viðkomustaður hans meðal Norðurlandanna.

Án þess að hafa fastmótaða ferðaáætlun er verkið hugsað í alþjóðlegu samhengi frá upphafi. Verk sem getur ferðast um allan heiminn og haft samskonar áhrif. Neitunin virkar á ólíkan hátt eftir staðsetningu verksins. Hvort sem það er á ferð um fjármálahverfi eða fátækrahverfi undirstrikar það samfélagslegar aðstæður, spillingu eða misskiptingu sem á sér stað í nútímasamfélagi. Verkið og staðsetningin skapa nýjar aðstæður sem minna á mikilvægi lýðræðisins, áhrifamátt neitunarvaldsins og nauðsyn þess að spyrna við fótum og mótmæla þegar á okkur er brotið.

Förin var fest á filmu, líkt og nú er gert, og var fyrsti hlutinn frumsýndur á Kvikmyndahátíðinni í Berlín í febrúar á síðasta ári. Myndin, sem er tveggja klukkustunda löng verður sýnd í Bíó Paradís þriðjudaginn 24. janúar kl. 20. Aðgangur er ókeypis fyrir Menningarkortshafa.

Nánari upplýsingar má finna hér: www.noglobaltour.com





Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.14.2012