Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Svarta Keilan - Gjörningur Santiago Sierra. Austurvöllur, föstudag 20. janúar kl. 13

An upcoming exhibition

Verkið Svarta keilan, minnisvarði um borgaralega óhlýðni samanstendur af 180 cm. háum steindranga og var komið fyrir á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið, föstudaginn 20. janúar. Gjörningurinn fólst í því að reka tæplega hálfs metra svarta stálkeilu í bjargið og framkalla þannig varanlega sprungu í það. Með gjörningnum vill Santiago Sierra minna á mikilvægi borgaralegra réttinda í lýðræði og þar með talið rétt þegna til að neita því að hlýðnast óréttlátum lögum og kröfum yfirvalda. Keilan mun standa áfram í steininum en sprungunni er ætlað að sýna þau áhrif sem einstök mótmæli geta haft.

Keilan sjálf vísar í svarta keilulaga hatta sem sakfelldir einstaklingar voru látnir ganga með til háðungar af rannsóknaréttinum á 12. öldinni. Á minnisvarðanum verður komið fyrir skilti sem á stendur á íslensku og ensku setning úr „Yfirlýsingu um réttindi manna og borgara“ sem voru birt sem formáli að stjórnarskrá sem franska þingið samþykkti árið 1793:

„Þegar ríkisstjórn brýtur á rétti þegnanna, þá er uppreisn helgasti réttur og ófrávíkjanlegasta skylda þegnanna sem og hvers hluta þjóðarinnar.“

Þessi yfirlýsing, sem lagði grunn að frönsku byltingunni, á vel við nú á tímum. Dagsetning gjörningsins er valin vegna sögulegra mótmæla sem haldin voru á Austurvelli fyrir réttum þremur árum, 20. janúar 2009, þegar þúsundir einstaklinga söfnuðust þar saman í tilefni af setningu Alþingis. Tilgangur gjörningsins er að minnist þeirra mótmæla og bylgju mótmæla sem hafa átt sér stað víða um heim á síðustu árum, allt frá Arabíska vorinu til umsátursins um Wall Street.

Minnisvarðinn mun standa á Austurvelli til 15. apríl eða þar til sýningu Santiagos Sierras í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi lýkur.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.15.2012