Fréttir / tilkynningar
Tónleikaboð í tilefni fæðingardags Mozarts. Kjarvalsstaðir, föstudag 27. Janúar kl. 18
Líkt og undanfarin ár verða tónleikar til heiðurs Mozarts haldnir á Kjarvalsstöðum á fæðingardegi hans 27. janúar. Tónleikarnir hefjast kl. 18 og á efnisskrá eru kvintett fyrir horn, fiðlu, tvær víólur og selló ásamt Divertimentói í D-Dúr KV 334 fyrir strengi og tvö horn.
Flytjendur eru: Laufey Sigurðardóttir fiðla, Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðla, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla, Guðrún Þórarinsdóttir víóla, Bryndís Halla Gylfadóttir selló, Joseph Ognibene horn og Þorkell Jóelsson horn.
Tónleikarnir hefjast kl. 18:00 og er aðgangur ókeypis.
Prenta Til baka