Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Forritun fyrir börn og fullorðna hjá LornaLAB. Hafnarhús, Laugardag 28. janúar kl. 13-17.

Fyrsta LornaLAB-smiðja þessa árs verður haldin undir handleiðslu Hannesar Högna Vilhjálmssonar, tölvunarfræðings og miðlunarlistavísindamanns. Smiðjan er ókeypis og öllum opin.

Forritun fyrir alla!
Þátttekendur munu fá kennslu og innsýn inn í möguleika tækninnar á skemmtilegan og áhugaverðan máta. Notast verður við forritunarumhverfi sem hentar mjög vel fyrir alla aldurshópa. Þátttakendur eru beðnir að koma með eigin fartölvur en geta sótt forritunarumhverfið á netinu. Ekki er gert ráð fyrir neinni sérstakri forritunarkunnáttu.

LornaLAB var stofnað sumarið 2010 sem umræðugrundvöllur fyrir miðlun tæknilegrar þekkingar. Meðlimir samstakanna hafa staðið fyrir margvíslegum fyrirlestrum, smiðjum og umræðum er lúta að nýrri tækni og möguleikum hennar í skapandi greinum. Meðlimir LornaLAB eru myndlistarmenn, tónlistarmenn, ýmist listafólk og aðrir áhugasamir, en nánari upplýsingar um félagsskapinn má finna hér: www.reykjavikmedialab.is


Viðburðurinn er frír og stendur öllum opinn.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00