Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Tímaflakk - Leiðsögn og smiðja fyrir 5 ára og eldri. Kjarvalsstaðir, sunnudag 29. janúar kl. 15.

Næstkomandi sunnudag verður boðið upp á skemmtilega smiðju, fyrir 5 ára og eldri þar sem flakkað verður um tímann með því að ganga um sýningarnar Draumlandið mitt í norðri - Karen Agnete Þórarinsson og Snøhettu - Arkitektúr, landslagshönnun, innanhússhönnun sem standa yfir í vestursal Kjarvalsstaða.

Karen Agnete var málari og dönsk eiginkona Sveins Þórarinssonar sem flutti frá fágaðri borgarastétt í Kaupmannahöfn til Íslands og settist að í torfbæ. En íslenski torfbærinn, bárujárnsklædd hús og síðar steinsteypt hús eru oft kölluð sérkenni íslenskrar byggingarlistar. Á sýningu Snøhetta, sem er norsk arkitektastofa, má aftur á móti sjá merkilegan arkitektúr sem stendur mjög framarlega í alþjóðlegri byggingarlist. Í smiðjunni verður unnið með þessi sérkenni þar sem leitað er aftur í arf íslenskrar byggingarlistar og horft fram á við með það að marki að skapa byggingar framtíðarinnar.

Hugrún ÞorsteinsdóttirSmiðjuna leiðir Hugrún Þorsteinsdóttir, safnakennari og arkitekt.
Sætafjöldi er takmarkaður en skráning fer fram í netfang: fraedsludeild@reykjavik.is, til föstudagsins 27. janúar.



Viðburðurinn fer fram á íslensku. Börn að 18 ára aldri og handhafar Menningarkortsins fá frítt, en nánari upplýsingar um aðgangseyri eru hér.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00