Fréttir / tilkynningar
Safnanótt í Listasafni Reykjavíkur, 10 febrúar kl. 19-24. - Ungstirni, nikkur, prjónakaffi, ljósaævintýri og safnabeltið
Listasafn Reykjavíkur býður upp á fjölbreytta dagskrá í öllum húsum á Safnanótt, föstudaginn 10. febrúar frá kl. 19.00-24.00. Sýningar og viðburðir standa gestum opnar þeim að kostnaðarlausu en auk fjölbreyttra sýninga í öllum húsum verður Safnabeltið kynnt í fyrsta sinn en það er búið skemmtilegum verkfærum sem gerir safnaheimsókn fjölskyldufólks að nýrri upplifum og góðum leik. Í Hafnarhúsi verður töfrandi ljósagjörningur í fjölnotasal og á Kjarvalsstöðum býður Heimilsiðnaðarfélagið upp á prjónakaffi og Skotthúfurnar sjá um harmonikkuleik. Unga kynslóðin ræður ríkjum í Ásmundarsafni en þar munu nemendur Klassíska listdansskólans leita innblásturs í verkum Ásmundar í dansi sínum og vonarstjarna íslenskra hljómsveita, White Signal, troða upp.
Ókeypis safnanæturstrætó gengur á milli safnanna þetta kvöld.
Í tilefni af Safnanótt verður aðgangur ókeypis fyrir ungt fólk að 25 ára aldrí laugardaginn 11. febrúar.
Nánari upplýsingar: www.safnanott.is
SAFNABELTIÐ LÍTUR DAGSINS LJÓS
Safnabeltið er nýjung í íslensku safnastarfi og er ætlað að auka upplifun og aðgengi fjölskyldufólks að sýningum Listasafns Reykjavíkur. Við Safnabeltið hangir taska sem útbúin er fjölbreyttum „verkfærum“ sem er ætlað að hjálpa fjölskyldusafngestum að upplifa listaverkin og söfnin á eigin forsendum. Safnabeltið stendur gestum til boða í öllum húsum safnsins þeim að kostnaðarlausu. Hönnuður og hugmyndasmiður Safnabeltisins er AlmaDís Kristinsdóttir, verkefnastjóri fræðslu við Listasafn Reykjavíkur.
Kynningar fara fram á eftirfarandi tímum:
Ásmundarsafni kl. 19:00
Kjarvalsstöðum kl. 20:00
Hafnarhúsi kl. 21:00
Hafnarhús
19:00-24:00 MAGNAÐ MYRKUR – KRISTALLAÐ LJÓS
Ljós- og hljóðinnsetning þeirra Alexander Zaklynsky, AuxPan og Leó Stefánsson stjórnast af tölvustýrðu forriti sem nemur taugalífeðlisfræðilegar virkni og innri skynjun heilans. Verkefnið er styrkt af GAMMA og verður sýnt í Brno House of Arts í Tékklandi sem hluti af verkefninu Remake í apríl 2012.
20:00 – 20:30 NEI! SAGÐI LITLA SKRÍMSLIÐ – ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR
Bókaupplestur fyrir þá sem yngri eru. Áslaug Jónsdóttir, rithöfundur og myndskreytir les upp úr bókinni Nei! Sagði litla skrímslið. Í þessari frumlegu og skemmtilegu bók er fjallað um vináttu, samskipti og kurteisi, og litla orðið Nei! sem stundum þarf að beita af hörku.
21:00 – 21:30 SAFNABELTIÐ Í LEIK OG LEIÐSÖGN
AlmaDís Kristinsdóttir, kynnir Safnabeltið sem er nýjung í íslensku safnastarfi. Safnabeltið inniheldur ýmis spennandi námsverkfæri og stendur gestum til boða í öllum húsum safnsins þeim að kostnaðarlausu. Markmið þess er að auka upplifun og aðgengi fjölskyldufólks að sýningum Listasafns Reykjavíkur.
23:00 RAFTÓNLISTARGJÖRNING – AUXPAN
Auxpan fremur raftónlistargjörning út frá innsetningunni Kristallað ljós í fjölnotasalnum.
Sýningar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi:

Kjarvalsstaðir
19:00 – 24:00 FJÖLSKYLDUSMIÐJA – BYGGINGARLIST OG TÍMAFLAKK
Opin og fræðandi listsmiðja fyrir fjölskyldur í tengslum við sýningarnar Snøhetta og Karen Agnete sem eru í vestursal. Í smiðjunni má finna skemmtileg verkefni sem unnin eru út frá sérkennum íslenskrar byggingarlistar og arkitektúrs framtíðarinnar.
20:00 – 20:30 SAFNABELTIÐ Í LEIK OG LEIÐSÖGN
AlmaDís Kristinsdóttir, kynnir Safnabeltið sem er nýjung í íslensku safnastarfi. Safnabeltið inniheldur ýmis spennandi námsverkfæri og stendur gestum til boða í öllum húsum safnsins þeim að kostnaðarlausu. Markmið þess er að auka upplifun og aðgengi fjölskyldufólks að sýningum Listasafns Reykjavíkur.
20:00 – 22:00 PRJÓNAKAFFI & PEYSUFÖT
Heimilisiðnaðarfélags Íslands bíður upp á prjónakaffi og segir gestum frá íslensku peysufötunum.
21:00 – 22:00 HARMONIKKUTÓNLIST - SKOTTHÚFURNAR
Skotthúfurnar er kvenfélagshópur innan Harmonikkufélags Reykjavíkur, þær taka nokkur vel valin lög.
22:00 – 23:00 BYGGINGARLIST- SNØHETTA OG KJARVALSSTAÐIR
Hugrún Þorsteinsdóttir arkitekt og listgreinakennari leiðir gesti um sýningu Snøhetta og byggingu Kjarvalsstaða.
Sýningar í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum:
Ásmundarsafn
Á Safnanótt, sem og á Vetrarhátíð, mun gestum safnsins gefast kostur á að taka þátt í vali á þeim styttum Ásmundar sem valdar verða til afsteypugerðar á þessu ári. Hægt er að velja úr átta styttum en tvær þeirra verða valdir úr og koma í sölu í á þessu ári. Meðal þeirra eru til að mynda Straukonan, Dýrkun, Jónsmessunótt, Landvættirnir, (Nefið) og Andlit.
19:00 – 19:30 SAFNABELTIÐ Í LEIK OG LEIÐSÖGN
AlmaDís Kristinsdóttir, kynnir Safnabeltið sem er nýjung í íslensku safnastarfi. Safnabeltið inniheldur ýmis spennandi námsverkfæri og stendur gestum til boða í öllum húsum safnsins þeim að kostnaðarlausu. Markmið þess er að auka upplifun og aðgengi fjölskyldufólks að sýningum Listasafns Reykjavíkur.
19:30 – 20:00 DANSAÐ ÚT FRÁ VERKUM ÁSMUNDAR
Nemendur Klassíska listdansskólans túlka í dansi og hreyfingum verk Ásmundar Sveinssonar sem nú eru til sýnis í safninu.
19:30 – 21:00 SKÓLINN SEM LISTAVERK / Í LAUGARNESSKÓLA
Í Laugarnesskóla verður sagt frá verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara en í forsal skólans er handrið sem hann skreytti. Í verkinu dregur listamaðurinn upp myndir af nemendum í námi og leik. Í Ásmundarsafni má sjá teikningar af verkinu í Laugarnesskóla.
21:00 – 22:00 LISTIN OG VÍSINDIN
Magnús Árnason, myndlistarmaður og Guðmundur Eggertsson, líffræðingur ræða um verkið Homage, sem er í Kúlu Ásmundarsafns.
22:00 - 23:00 WHITE SIGNAL
Hljómsveitin White Signal er skipuð ungu, efnilegu tónlistarfólki sem hefur, þrátt fyrir ungan aldur, vakið verðskuldaða athygli fyrir frumsamda tónlist og vandaðan flutning. Hljómsveitina skipa Guðrún Ólafsdóttir, Katrín Helga Ólafsdóttir, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, Brynjar Guðlaugsson og Snorri Örn Arnar.
Sýningar í Listasafni Reykjavíkur - Ásmundarsafni:
Prenta Til baka