Fréttir / tilkynningar

Kolbeinn Hugi Höskuldsson - Hafnarhús, fimmtudag 21. júní kl. 17.

„Hvað þýða litir, hljóð og ljós? Í hvaða miklahvelli búum við?
Elskar hún mig eða elskar hún mig ekki? Hvaða svör bjóða kristallarnir?“

Þetta eru hugleiðingar Kolbeins Huga Höskuldssonar myndlistarmanns sem sýnir nýtt verk í myndbandsinnsetningunni The Demented Diamond of Kling & Bang’s Confected Video Archive  sem er hluti af sýningunni „Sjálfstætt fólk“, sem nú stendur yfir í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Kolbeinn Hugi Höskuldsson útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2004 og hefur síðan getið sér nafn fyrir stórar tilraunakenndar, innsetningar, myndbandsverk og gjörninga.

Kling & Bang hópurinn stendur að baki innsetningunni og sýnir þar myndbandsverk eftir ýmsa listamenn sem tengst hafa galleríinu í gegnum árin. Verkum er skipt út á hálfsmánaðar fresti.

Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2012.


Dagskrá:
5.júlí - Ragnar Helgi Ólafsson
19. júlí - Þórgunnur Oddsdóttir
2. ágúst - Brot úr verkum Kling & Bang
16. ágúst - Loji Höskuldsson
30. ágúst - Gullmoli

Nánar: www.independentpeople.is

 

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00