Fréttir / tilkynningar

Breyttar áherslur á sviði byggingarlistar

Vegna niðurskurðar á fjárveitingum hefur Listasafn Reykjavíkur ákveðið að endurskoða þann þátt starfsemi sinnar sem tengist byggingarlist. Frá árinu 1993 hefur verið starfandi sérstök byggingarlistardeild við safnið. Fram til ársins 2011 var deildarstjóri í fastri stöðu við safnið er sinnti undirbúningi sýninga og viðburða á sviði byggingarlistar, almennri upplýsingagjöf og erlendu samstarfi á sérsviði arkitektúrs auk umsjónar með munum og gögnum í vörslu deildarinnar og rannsókna tengdum þeim.

Eftir breytinguna mun Listasafn Reykjavíkur eftir sem áður standa fyrir sýningum og viðburðum í samræmi við upphafleg markmið um starfsemi byggingarlistadeildar. Í vali viðfangsefna verður áhersla m.a. lögð á tengsl arkitektúrs við aðrar greinar sjónlista. Ráðnir verða sýningarstjórar til að annast undirbúning einstakra verkefna og viðburða líkt og tíðkast á sviði myndlistar.

Listasafn Reykjavíkur mun framvegis ekki annast safneign og rannsóknir á sviði byggingarlistar. Að höfðu samráði við Arkitektafélag Íslands hefur Listasafn Reykjavíkur falið Þjóðskjalasafni Íslands að varðveita stærstan hluta af safnkosti byggingarlistardeildar. Flest teikningasöfn arkitekta í vörslu listasafnsins voru afhent á grundvelli vörslusamnings sem felur í sér að safnið hefur haft þau til varðveislu en er ekki formlegur eigandi. Leitað verður samþykkis eigenda höfundarréttar fyrir flutningi einstakra safna milli stofnana.

Á Þjóðskjalasafni Íslands er fyrir hendi stærsta safn arkitektateikninga hér á landi. Húsnæði þess uppfyllir fyllstu öryggiskröfur sem gerðar eru til skjalageymslna. Þar er einnig búnaður til ljósmyndunar og skönnunar stórra teikninga og pappírsforvörsluverkstæði. Stjórnendur Þjóðskjalasafns hafa lýst áhuga á því að byggja upp heilsteypt og aðgengilegt safn heimilda um íslenska húsagerðarsögu í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.

Teikningar, skjöl og líkön úr safni Byggingarlistardeild sem tengjast Reykjavík sérstaklega verði áfram varðveitt hjá söfnum borgarinnar. Líkön og gögn úr safni Byggingarlistardeildar með sérstök tengsl við íslenska hönnunarsögu verða ráðstafað í samráði við gefendur. Bækur um byggingarlist, hljóðritanir, myndbönd og afrit teikninga í vörslu Byggingarlistardeildar verður afhent bókasafni Listaháskóla Íslands, þar sem bókasafn Arkitektafélags Íslands er varðveitt. Safnadeild Listasafns Reykjavíkur mun hafa yfirumsjón með ráðstöfun hluta úr safni Byggingarlistardeildar til annarra safna.

Um þá breyttu tilhögun sem hér er lýst hefur verið fjallað í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur, borgarráði og borgarstjórn og hafa þau samþykkt hana fyrir sitt leyti.

 

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 10:00-17:00