Fréttir / tilkynningar
TripAdvisor veitir Listasafni Reykjavíkur viðurkenningu fyrir afburða árangur
„Til hamingju! Listasafn Reykjavíkur er sigurvegari“ segir í viðurkenningarskjali sem TripAdvisor sendi Listasafni Reykjavíkur í dag. Þar kemur fram að þessi öflugasta ferðasíða heims, sem kunn er fyrir umsagnir og einkunnagjöf ferðalanga um allan heim, veiti Listasafni Reykjavíkur viðurkenningu fyrir háa einkunnagjöf og frábærar umsagnir og meðmæli frá ferðamönnum.
Viðurkenningin er aðeins veitt þeim fyrirtækjum sem notendur TripAdvisor síðunnar gefa hæstu einkunn. Þann sess hefur Listasafn Reykjavíkur nú öðlast með því að halda einkunnagjöfinni 4,5 af 5 mögulegum um langt skeið.
Í yfirlýsingu frá TripAdvisor segir ennfremur að viðurkenninguna hljóti aðeins þeir aðilar sem bjóði upp á framúrskarandi starfsemi á heimsvísu að mati ferðamanna og starfsfólks ferðaþjónustunnar.
Meðal ummæla sem finna má á síðunni um Listasafn Reykjavíkur eru:
Ef þú ert listunnandi skaltu ekki missa af þessu safni
,,Ef þú vilt sjá flottar og áhrifamiklar sýningar í stórborgum þá kemur þú til með að njóta heimsóknarinnar á þetta safn.“
Einn aðgöngumiði- mörg söfn
,,Það er virkilega þess virði að fara á þetta safn. Ég fór á þrjá staði fyrir einn aðgöngumiða og naut þess virkilega.“
Glæsileg innsýn í íslenska list
,,Ég var gríðarlega hrifin af sýningunum í safninu. Við sáum mjög áhugaverð listaverk eftir íslenska listamenn þar á meðal innsetningu, ljósmyndir og skúlptúr.“
TripAdvisor.com er vefsíða fyrir ferðalanga sem hjálpar þeim að safna saman ýmis konar ferðaupplýsingum og láta í ljós skoðun sína og veita umsagnir á gagnvirkan hátt. Þjónustan er notendum að kostnaðarlausu.
Listasafn Reykjavíkur fagnar viðurkenningunni og þakkar hana samtakamátt starfsfólks, sem hefur lagt áherslu á að standa undir kröfum sem gerðar eru til stórra safna á alþjóðlegum vettvangi. Einnig hefur safnið undanfarna mánuði staðið fyrir viðamiklu átaki gagnvart ferðaþjónustunni, sem nú þegar er farið að skila sér.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 18.57.2013
|