Fréttir / tilkynningar
Helgi Gíslason Listamannsspjall Sunnudaginn 16. september kl. 15:00
Helgi er vel kunnur fyrir brons- og gifsmyndir sínar sem hafa verið sýndar víða hér á landi og erlendis. Á sýningu Kjarvalsstaða sýnir listamaðurinn nýjar lágmyndir sem er miðill sem Helgi sér sem „einstigi milli tvívíddar og þrívíddar”.
Helgi Gíslason fæddist 1947 og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1965-70 og síðan við Valand listaháskólann í Gautaborg 1971-76. Sýningin stendur til 14. október.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 23.20.2013
|