

Heimsókn á Listasafn Reykjavíkur býður upp á margvíslega möguleika til upplifunar, fræðslu og náms. Starfsemi Listasafns Reykjavíkur fer fram á þremur stöðum innan borgarinnar: Kjarvalsstöðum við Flókagötu, Ásmundarsafni við Sigtún og Hafnarhúsi við Tryggvagötu.
Sérpantanir fyrir hópa
Heimsókn á Listasafn Reykjavíkur býður upp á margvíslega möguleika til upplifunar, fræðslu og náms. Starfsemi Listasafns Reykjavíkur fer fram á þremur stöðum innan borgarinnar: Kjarvalsstöðum við Flókagötu, Ásmundarsafni við Sigtún og Hafnarhúsi við Tryggvagötu. Hægt er að panta leiðsögn fyrir hina ýmsu hópa s.s. félagasamtök, vinnustaðahópa eða vinahópa og er heimsóknin sniðin að óskum hvers hóps eins og hægt er. Verð er kr. 24.000 per hóp. Á Kjarvalsstöðum er hægt að semja sérstaklega um veitingar.
Leiðsögn fyrir börn og fullorðna
Boðið er upp á sérstaka leiðsögn fyrir börn og fullorðna sem eykur skilning og áhuga á myndlist gegnum leik. Hægt er að framkvæma þessar leiðsagnir í öllum okkar safnhúsum en panta þarf með góðum fyrirvara. Hópurinn fær verkefni sem þarf að leysa og safnkennari vinnur markvisst með hópnum. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir foreldrafélög í grunnskólum til að eiga uppbyggilega og skemmtilega stund með börnunum sínum eða fyrir óhefðbundin barnaafmæli. Hægt er að sníða leiðsögnina að þörfum hvers hóps eins og kostur er og innan þolmarka safnsins þannig að listaverkunm eða öðrum safngestum stafi ekki hætta af. Tekið er á móti hópum jafnt virka daga sem um helgar en lágmarskfjöldi eru 15 börn, hámark 25. Leikur og leiðsögn kostar kr. 24.000.
Leiðsögn fyrir eldri borgara á virkum dögum
Boðið er upp á ókeypis leiðsögn um söfnin fyrir eldri borgara alla virka daga á opnunartíma safnanna. Leiðsögnina þarf að panta sérstaklega og með góðum fyrirvara.
Leiðsögn fyrir fatlaða á virkum dögum
Boðið er upp á ókeypis leiðsögn um söfnin fyrir hópa fatlaðra alla virka daga á opnunartíma safnanna. Í Ásmundarsafni er m.a. boðið upp á leiðsögn fyrir blinda þar sem gestum er gefinn kostur á að kynnast verkunum með snertingu gegnum hanska. Einnig er boðið upp á túlkaþjónustu fyrir heyrnarlausa. Allar nánari upplýsingar veitir fræðsludeild Listasafns Reykjavíkur. Leiðsögnina þarf að panta sérstaklega og með góðum fyrirvara.
Athugið að hægt er að fá allar nánari upplýsingar hjá fræðsludeild alla virka daga á milli klukkan 8:30 og 16 í síma 590 1200 eða senda fyrirspurn á netfangið: freadsludeild@reykjavik.is.