Safnfræðsla 20/20: Skapandi nám á safni - skólaárið 2011–2012
Í viðamikilli breskri rannsókn sem unnin var á árunum 2003–2005 kom í ljós að 90% krakka á aldrinum 6–16 ára sögðust hafa lært eitthvað nýtt og spennandi í safnheimsókn (Hooper-Greenhill 2007:112).
20 ára reynsla – mikilvæg námsuppspretta
Listasafn Reykjavíkur vill benda kennurum, allra skólastiga á að nýta sér 20 ára reynslu fræðsludeildar safnsins í að vinna á skapandi hátt með skólahópum þeim að kostnaðarlausu. Listasöfn búa yfir afar frjóu og skapandi umhverfi. Í söfnunum eru ótal spennandi fræðslumöguleikar sem nota má sem efnivið í kennslu og tengja við nánast hvaða námsgrein sem er. Anne Bamford segir í skýrslunni List- og menningarfræðsla á Íslandi að söfn mættu hafa meira vægi í námskrám skóla en þau ætti að nýta sem mikilvæga námsuppsprettu (Bamford, 2011, bls. 81).
Skapandi hugsun
Upplifun á safni getur virkað sem kveikja að skapandi hugsun og er góð tilbreyting frá hefðbundnu kennslurými. Safnfræðsla í listasafni er afar líkleg til að veita innblástur, víkka sjóndeildarhringinn og er því kjörinn vettvangur til óformlegs og ánægjulegs náms. Í sameiginlegum hluta Aðalnámskrár fyrir leik- grunn- og framhaldsskóla er sköpun talin einn af grunnþáttum menntunar því hún byggist á hugsun og aðferðum sem opna sífellt nýja möguleika.
Tilgangur og tengingar skipta sköpum
Til þess að safnheimsóknir skili sem mestu til nemenda er mikilvægt að tengja þær við námsefni og samþætta allt skólaárið. Fræðsludeild Listasafns Reykjavíkur mælir ekki með því fyrirkomulagi að „geyma“ safnheimsóknir eða vettvangsferðir á safn þar til skólaári er að ljúka heldur að flétta safnheimsóknir markvisst inn í starfið. Tilgangur kennara sem koma með nemendur í safnheimsóknir skiptir sköpum. Sýnt hefur verið fram á að árangur, ánægja, innblástur og skapandi hugsun sem afleiðing af safnheimsóknum eykst til muna hafi kennarar ákveðinn ásetning og tengingar við námsefni í huga bæði við undirbúning og eftirfylgni safnheimsókna (Hooper-Greenhill 2007:119–110). Kennarar, sem koma með nemendur í safnið, gegna lykilhlutverki í safnheimsókninni því þeir þekkja sitt fólk og sín áform. Safnkennarar þekkja sýningar og rými safnanna vel og eru reiðubúnir til virkar samvinnu við kennara sem vilja nýta sér þær með nemendum sínum hvort sem um er að ræða einstaka heimsókn eða heimsóknaröð. Safnkennarar Listasafns Reykjavíkur eru með fjölbreyttan bakgrunn á sviði kennslufræði, hönnunar, listfræði, myndlistar og safnafræði.
Fyrirkomulag
Safnfræðsla í formi leiðsagna er veitt skólum að kostnaðarlausu. Lykilatriði er að bóka heimsókn með góðum fyrirvara. Listasafn Reykjavíkur starfar á þremur stöðum í borginni: í Ásmundarsafni, í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum. Einfaldasta leiðin til að bóka tíma og nálgast upplýsingar um sýningar er hér á heimasíðu til vinstri undir flýtileiðinni „Panta leiðsögn“ sem fer beint inn á síðu fyrir skóla, almenning og Flökkusýningar safnsins. Beiðni er fyllt út og svarað eins fljótt og hægt er. Hægt er að panta tíma í síma 590 1200 fyrir öll húsin eða senda tölvupóst á netfangið: fraedsludeild@reykjavik.is
Tekið er á móti skólahópum alla virka daga í söfnunum frá kl. 8:30–15:30 eða eftir samkomulagi.
Heimsóknin tekur eina til tvær kennslustundir en semja má um lengri heimsókn sé þess óskað.
Hámarksfjöldi nemenda í hópi er einn bekkur(um 25 nemendur).
Bókið tíma með góðum fyrirvara í síma: 590 1200 (biðjið um fræðsludeild)
Prenta